Makamálum hafa undanfarið borist fleiri en ein ábending frá karlkyns lesendum sem vilja vekja athygli á upplifun feðra á meðgöngu og fæðingu. Umsjónarmaður Makamála viðurkennir fúslega að hafa ekki verið búin að hugsa út í þennan vinkil, þ.e. upplifanir og frásagnir feðra og vekur það upp allskonar hugleiðingar.
Ætli staða og hlutverk feðra á meðgöngu og í fæðingu eigi það til að gleymast í umræðunni?
Ætli þeir fái aðstoð eða stuðning varðandi erfiðar og flóknar tilfinningar sem geta komið við þessi stærstu tímamót hvers einstaklings?
Við vorum saman í erfiðri meðgöngu og fæðingu sem var að mörgu leyti erfiðari fyrir manninn minn af því að hann var áhorfandi meðan ég var ógeðslega veik, öskrandi, grátandi og allt í uppnámi. Ég var ógeðslega upptekin og mátti ekkert vera að því að hafa áhyggjur, en hans hlutverk bara að vera til staðar lengi framan af og ég veit að þetta var rosalega erfitt fyrir hann.Þó að feður gangi ekki með börnin þá eru þeir stór hluti af bæði meðgöngu og fæðingu. Upplifun þeirra getur verið eins ólík og viðkvæm eins og upplifun mæðra og veltir umsjónarmaður Makamála fyrir sér hvort að samfélagið eigi það hreinlega til að gleyma pöbbunum?
Við gerðum það allavega.
Makamál kynna því stolt til leiks nýjan viðtalslið sem mun bera nafnið, Föðurland.
Viðtalsformið verður svipað og Móðurmál en viðmælendurnir verða tilvonandi og nýbakaðir feður.
Fyrsta viðtalið mun birtast á næstu dögum.
Okkur langar líka til að heyra í pöbbunum.
Makamál vilja nota tækifærið og þakka lesendum kærlega fyrir þessa ábendingu og taka fagnandi á móti fleiri ábendingum varðandi umfjöllunarefni eða viðmælendur á netfangið makamal@syn.is.