Veiði

Fyrstu lokatölur úr laxveiðinni

Karl Lúðvíksson skrifar
Fyrstu lokatölur úr laxveiðiánum eru komnar í hús og í nokkrum tilfellum sýna þær svart á hvítu hversu erfitt þetta sumar var í sumum ánum.

Vesturlandið átti sérstaklega undir högg að sækja þar sem þurrkar gerðu árnar svo vatnslitlar að líklega hefur aldrei verið jafn lítið vatn í ánum. Þegar loksins fór að rigna áttu nokkrar ár mjög góða spretti og má þar til að mynda nefna Laxá í Dölum og Langá á Mýrum en í Langá til að mynda veiddust jafn margir laxar fyrstu tvær vikurnar í september eins og fyrstu tvo mánuðina í sumar þegar veiði hófst. Það vantar tölu úr Laxá í Dölum inná listann en fréttir þaðan síðustu viku eru almennt góðar þó svo að áin sé líklega komin á flot eftir rigningu síðustu fjóra daga.

Lokatölur eru komnar úr Norðurá sem er með 577 laxa sem er lélegasta veiði í ánni frá 1974 og það er nokkuð ljóst að það þarf að grípa til aðgerða í ánni því það var afskaplega lítið af laxi í henni. Lokatalan úr Elliðaánum er 537 laxar en frá árinu 2000 hafa fjögur ár verið lakari. Skjálfandafljót endaði í 330 löxum sem er 80 löxum betri veiði en í fyrra en hún hefði getað farið hærra hefði hún verið betur seld því það var eftir því sem við höfum heyrt gott magn af laxi í henni eins og flestum ám í þessum landshluta. 

Búðardalsá lokar með 98 löxum eða 233 undir veiðinni í fyrra og svo eru það Straumarnir með 56 laxa lokatölu sem er líklega án efa eitt lélegasta sumar þar fyrr og síðar og endurspeglar slaka veiði í Norðurá. Það er ennþá veitt í rétt tæpa átta daga en lengur í hafbeitaránum svo lokatölur þaðan eru ekki væntanlegar fyrr en í lok október. Listann í heild sinni má finna á www.angling.is





 






×