105 sm lax úr Hítará Karl Lúðvíksson skrifar 6. september 2019 15:59 Gunnar með 105 sm laxinn sem hann veiddi í Hítará í morgun Mynd: Hítará FB
Það hefur ekki mikið verið að frétta af bökkum Hítarár í sumar en það virðist þó vera líf í ánni og nú eru tröllin farin að hreyfa sig. Við höfum verið að greina frá skemmtilegum fréttum af stórlöxum síðustu daga og í morgun bættist einn við og eftir því sem við komumst næst er þetta stærsti laxinn af vesturlandi þetta tímabilið en það gæti alveg breyst þar sem tímabilið er ekki búið ennþá. Gunnar Sigurðsson sem er við veiðar í ánni setti í og landaði þessum glæsilega 105 sm laxi í morgun og að sögn þeirra sem hafa verið að kíkja í ánna síðustu daga hafa nokkrir svona drekar sést þarna í sumar. Heildarveiðin í Hítará er að detta í 200 laxa en hún hefur því miður ekki verið jafn stíft stunduð eins og síðustu ár og er það ein afleiðing skriðunnar sem féll í Hítardal. Það virðist engu að síður vera nokkuð af laxi á helstu stöðu sem og er silungsveiðin að glæðast mikið en holl sem var við veiðar í ágúst náði 50 sjóbirtingum og bleikjum með þremur löxum eftir okkar heimildum.
Mest lesið Veiði að glæðast í Straumunum Veiði Veiðivísir gefur Veiðikortið 2016 Veiði Ennþá góður reytingur í Ytri Rangá Veiði Lokatalan í Straumunum Veiði Er sumarflugan 2014 fundin? Veiði Fimmta framboðið til stjórnar SVFR Veiði Sjóbirtingurinn mættur við Ölfusárós Veiði Léttklæddar laxaflugur Veiði Hugleiðingar um netaveiði á vatnasvæði Ölfusár og Hvítár Veiði Lækkað verð á vatnasvæði Lýsu Veiði