Veiði

Aðeins fjórar ár yfir 1.000 laxa

Karl Lúðvíksson skrifar
Eystri Rangá er aflahæst í sumar. Hér er Árni Kristinn  með einn af stærstu löxunum úr ánni í fyrra.
Eystri Rangá er aflahæst í sumar. Hér er Árni Kristinn með einn af stærstu löxunum úr ánni í fyrra. Mynd: Árni Kristinn Skúlason FB
Það sígur hægt að lokum þessar veiðisumars sem verður líklega lengi minnst sem eitt versta þurrkasumar allra tíma.

Það er eiginlega erfitt að horfa upp á heildarveiðitölur úr ánum inná vef Landssambands Veiðifélaga, www.angling.is en tölurnar þar segja þó ekki nema hálfa söguna. Ár eins og Langá, Þverá Kjarrá og Laxá í Dölum hafa sýnt það eftir að það fór að rigna að þær eiga nokkuð inni. Það sýnir t.d. 120 laxa holl í Laxá í Dölum 90 laxa vika í Langá og jöfn veiði frá því að það fór að hækka í Þverá og Kjarrá. 

Á listanum yfir aflahæstu árnar eru aðeins fjórar ár komnar yfir 1.000 laxa og aðeins ein yfir 2.000 laxa en það er Eystri Rangá en heildarveiðin í henni þegar tölur voru síðast birtar var 2.782 laxar og er hún lang aflahæst yfir árnar í sumar og veiði í henni líkur ekki fyrr en í lok október. Árnar sem eru komnar yfir 1.000 laxa eru svo Selá í Vopnafirði en hún er búin að eiga afbragðs sumar og er með langhæstan fjölda laxa per stöng í sumar og með heildarveiði upp á 1.391 geta þeir sem að ánni koma vel við unað. Ytri Rangá hefur skilað 1.364 löxum og hún á kannski möguleika á að teygja sig að 2.000 löxum en það er ansi ólíklegt að hún fari yfir það. Hún hefur verið langt undir væntingum í sumar. Miðfjarðará er síðan með 1.324 laxa og þar gæti talan hækkað meira því haustveiðin þar er oft mjög góð.

Þverá og Kjarrá eiga kannski möguleika á að ná 1.000 löxum en veiðin þar er komin í 907 laxa síðasta miðvikudag en að sama skapi eins og í Miðfjarðará getur endaspretturinn oft verið mjög góður. Nýjar tölur verða birtar á vefnum næsta miðvikudag og það verður fróðlegt að sjá hvernig haustveiðin er að koma inn.






×