Jón Guðni og félagar tylltu sér á toppinn | Ekkert gengur hjá Dijon Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 24. ágúst 2019 20:47 Jón Guðni hefur leikið allan tímann í síðustu þremur leikjum Krasnodar. vísir/getty
Jón Guðni Fjóluson lék allan leikinn fyrir Krasnodar sem gerði jafntefli við Lokomotiv Moskvu, 1-1, í rússnesku úrvalsdeildinni. Krasnodar er á toppi deildarinnar með 14 stig, jafn mörg og Lokomotiv en er með betri árangur í innbyrðis viðureignum liðanna. Jón Guðni hefur leikið 90 mínútur í síðustu þremur leikjum Krasnodar. Rúnar Alex Rúnarsson stóð á milli stanganna hjá Dijon sem tapaði fyrir Bordeaux, 0-2, í frönsku úrvalsdeildinni. Dijon hefur tapað öllum þremur deildarleikjum sínum það sem af er tímabili og aðeins skorað eitt mark. Rúnar Alex hefur leikið alla þrjá leiki Dijon á tímabilinu. Í fyrra lék hann 26 deildarleiki fyrir Dijon. Hólmar Örn Eyjólfsson kom inn á undir lok leiks Levski Sofia og Lok. Plovdiv. Levski Sofia vann, 1-0, og komst þar með á topp deildarinnar. Hólmar hefur komið við sögu í síðustu tveimur leikjum Levski Sofia. Hann er óðum að nálgast fyrri styrk eftir að hafa verið frá vegna meiðsla síðan í nóvember 2018. Þá lék Aron Bjarnason síðustu níu mínúturnar þegar Újpest tapaði fyrir Kisvarda, 1-0, í ungversku úrvalsdeildinni. Újpest er í 6. sæti með fjögur stig.
Fótbolti Franski boltinn Rússneski boltinn Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Enski boltinn „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Handbolti Fleiri fréttir Hætta við áform um Afríkukeppnina í fótbolta Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Sjá meira