Menning

Bardagamenn bregða sverðum í Eyjafirði

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Íslenski hesturinn er ómissandi á Gásastað, bæði að fornu og nýju, en þar verður haldin hátíð með sönnu miðaldasniði
Íslenski hesturinn er ómissandi á Gásastað, bæði að fornu og nýju, en þar verður haldin hátíð með sönnu miðaldasniði
Hér verða um hundrað Gásverjar við leik og störf alla helgina og margt í boði fyrir gesti sem vilja fylgjast með lífi fólks á miðöldum og kaupa ýmiss konar varning sem þá var boðinn til kaups,“ segir Tinna Stefánsdóttir, verkefnastjóri Miðaldadaga 2019, þegar forvitnast er um þann gjörning sem í vændum er á Gásum í Eyjafirði 20. og 21. júlí.

„Kaupstaðurinn verður líf legur og fjölbreytt dagskrá í boði fyrir fólk á öllum aldri. Því gefst kostur á að upplifa blómatíma staðarins, kynnast handverki af ýmsum toga og daglegum störfum,“ segir Tinna og nefnir bókfellsgerð úr kálfskinni, kaðlagerð, tréskurð, leirmunavinnslu og vattarsaum sem dæmi um iðnir sem hægt verður að fylgjast með á staðnum.

„Svo verður bogfimi æfð og bardagamenn munu bregða sverðum, gapastokkur Gásakaupstaðar verður nýttur fyrir glæpamenn og gestir fá að grýta þá með eggjum.“ Þetta er í sextánda sinn sem  verslunarstaðurinn Gásar  er endurskapaður sem tilgátusvæði með tilheyrandi mannlífi. 

Tónlist á hátíðinni verður í þeim anda sem  hæfir tilefninu, bæði ætlar Jónína Björt – sem titluð er miðaldakona –  að syngja íslensk þjóðlög og félagar úr sönghópnum Hymnodiu flytja lög frá miðöldum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.