Arsenal sagt vera á eftir Brasilíumanninum Marcelo Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 5. júlí 2019 09:30 Marcelo hefur unnið Meistaradeildina fjórum sinnum með Real Madrid. Getty/Chris Brunskill
Marcelo vill fara frá Real Madrid eftir þrettán tímabil hjá spænska félaginu og hann gæti endað í London samkvæmt fréttum frá Spáni. Spænska blaðið Sport segir að Arsenal ætli að taka þátt í kapphlaupinu um Marcelo en fær þar mikla samkeppni frá liðum eins og Paris Saint-Germain, Juventus og AC Milan. Marcelo er nú 31 árs gamall og hefur ekki spilað fyrir neitt annað evrópskt félag en Real Madrid. Nú finnst honum hins vegar vera kominn tími til að prófa eitthvað annað.Arsenal are believed to be in the race to sign Marcelo as the Brazilian left-back has asked to leave Real Madrid. More gossip https://t.co/nneJh7l2sp#bbcfootballpic.twitter.com/KvsCAT4PjX — BBC Sport (@BBCSport) July 5, 2019Það hjálpar líka mikið til að Real Madrid var að kaupa franska bakvörðinn Ferland Mendy frá Lyon fyrir 47 milljónir punda. Marcelo gæti því þurft að dúsa mikið á varamannabekknum á komandi tímabili verði hann áfram hjá Real. Marcelo kom til Real Madrid frá Fluminense árið 2006 eða þegar hann var aðeins átján ára gamall. Marcelo hefur spilað 486 leiki fyrir Real Madrid á ferlinum og 58 landsleiki fyrir Brasilíu á sama tíma. Hann hefur upplifað mikla velgengni með spænska félaginu og sigurinn í heimsmeistarakeppni félagsliða á síðasta tímabili var hans tuttugasti titil með Real Madrid.Marcelo has demanded a summer transfer at Real Madrid... and Arsenal are interested in signing him.https://t.co/IDFNsLPH9dpic.twitter.com/FhjTEsKmf2 — Express Sport (@DExpress_Sport) July 4, 2019Marcelo er nú í sumarfríi eftir að hafa misst sæti sitt í brasilíska landsliðinu. Hann var ekki valinn í hóp Brasilíu á Copa America. Marcelo er ekki eini vinstri bakvörðurinn á óskalista Arsenal því enska félagið er einnig að forvitnast um Kieran Tierney hjá Celtic.
Enski boltinn Spænski boltinn Mest lesið Sigursteinn barðist við tárin Handbolti „Íslenska eldfjallið“ sem átti að vera varaskeifa en vann svo titilinn Handbolti „Það er algjör geðbilun að spila í þessum hita“ Sport Aron verður aðalþjálfari FH en Sigursteinn aðstoðar Handbolti Carlsen í neðsta sæti í Noregi Sport Ósátt með HSÍ eftir að hafa orðið fyrir fordómum: „Hreint út sagt ömurlegt“ Handbolti Hættu leik þegar flugeldum var skotið inn á völlinn Handbolti Jón Daði utan hóps af persónulegum ástæðum Íslenski boltinn Vilja ráða Iraola eða Lampard Enski boltinn Neitaði að taka í hönd hennar: „Væri til skammar að svindla svona“ Sport Fleiri fréttir Sjáðu allar bestu stoðsendingar tímabilsins í enska boltanum Vilja ráða Iraola eða Lampard Vann tvo Evróputitla sama vorið Í keppni sem þeim var vísað út úr: „Ævintýri sem átti að enda svona“ Barcelona búið að landa Gordon Ederson nálgast Manchester United Stórlið slást um Gordon Siggi Bond með besta stjörnuliðið en Ragnar hætti snemma Tottenham leitar að rót meiðslavandans Nuno verður áfram stjóri West Ham Arteta valinn þjálfari ársins í fyrsta sinn Rúrik hafði rétt fyrir sér um Wirtz City að vinna United í slagnum um Anderson Stoðsending Bruno staðfest og metið í hans eigu Óeining innan stjórnar West Ham um næstu skref eftir krísufund United bætti sig mest en Liverpool hrakaði Ætlar að hringja í Keane og leiðrétta „lygar“ hans Liði 92 strákanna mistókst að komast upp Flottustu mörk tímabilsins í enska boltanum Mörkin úr lokaumferðinni og tárvotar kveðjustundir Bruno bætti metið eða hvað? Bolton flaug upp en Benoný og félagar sátu eftir Tottenham bjargaði sér og Liverpool tók eina lausa sætið Svona er lokaumferðin: Fall upp á 43 milljarða og hvaða lið fá Evrópusæti? Dramatík er McBurnie skaut Hull í úrvalsdeildina Éderson á leið til Manchester United Kæra ef þeir tapa Fernandes og O'Reilly bestir í deildinni „Sorglegt að sjá hvernig er komið fyrir mínum klúbbi“ Sjáðu allt það besta sem Guardiola hefur gert í enska boltanum Sjá meira