Cristiano Ronaldo skaut Portúgal í úrslit Þjóðadeildar UEFA með þrennu í undanúrslitunum gegn Sviss.
Ronaldo hafði ekkert spilað í Þjóðadeildinni áður, hann var ekki með portúgalska landsliðinu í riðlakeppninni, en hann mætti í undanúrslitin og sýndi snilli sína.
Leikurinn var mjög fjörugur í upphafi og áttu bæði lið sín færi. Það kom þó bara eitt mark í fyrri hálfleikinn, það gerði Ronaldo beint úr aukaspyrnu.
Snemma í seinni hálfleik tók myndbandsdómgæslan sviðsljósið. Felix Brych, dómari leiksins, dæmdi vítaspyrnu á Sviss en svissnesku leikmennirnir mótmæltu því og þrættu við dómarann að þeir hefðu átt að fá vítaspyrnu hinu megin á vellinum augnabliki áður.
Brych fór og skoðaði atvikið í myndbandstækjunum á hliðarlínunni og eftir að hafa margskoðað upptökuna ákvað dómarinn að dæma á Portúgal. Ricardo Rodriguez fór á punktinn og jafnaði metin fyrir Sviss.
Það stefndi allt í framlengingu þegar Ronaldo ákvað að taka málin í sínar hendur, hann skoraði tvö mörk á tveggja mínútna kafla í blálokin.
Portúgal vann 3-1 sigur og mætir annað hvort Hollandi eða Englandi í úrslitaleiknum.
Þrenna Ronaldo skaut Portúgal í úrslitin
