Fyrrum konungur Belgíu samþykkir að veita lífsýni vegna faðernismáls Andri Eysteinsson skrifar 29. maí 2019 12:16 Dæmi hver fyrir sig um líkindin. Samsett/Getty/ Renders & Van Hecke
Albert II. konungur Belgíu sem ríkti frá 1993 til ársins 2013, þegar hann afsalaði sér völdum sökum versnandi heilsu, hefur samþykkt að veita lífsýni til faðernisprófs til að útkljá mál belgísku listakonunnar Delphine Boël. Guardian greinir frá.Boël hefur í fjölda ára haldið því fram að hinn raunverulegi faðir hennar sé Albert II en Boël heldur því fram að konungurinn hafi haldið við móður hennar, barónessuna Sybille de Selys Longchamps á þeim tíma sem hún var getin. Albert hefur aldrei neitað því opinberlega að hann sé faðir Boël en hefur ætíð hafnað því að veita lífsýni til rannsóknar. Belgískur áfrýjunardómstóll úrskurðaði hins vegar fyrr í mánuðinum að Alberti væri skylt að veita sýnið ellegar yrði hann sektaður um 5000 evrur daglega. Í yfirlýsingu frá lögfræðingi konungsins fyrrverandi sagði að vegna virðingar sem konungurinn ber í garð réttarkerfisins, hefði Albert ákveðið að virða óskirnar og veita lífsýni. Lögfræðingur listakonunnar Delphine Boël sagði hana vera himinlifandi yfir því að sönnunargögnin sem varpa muni ljósi á uppruna hennar séu nú til staðar. Albert II og eiginkona hans, Paola drottning eiga saman þrjú börn, Filippus sem nú er konungur Belgíu, Ástríði prinsessu og Lárens prins, öll eru þau eldri en hin 51 árs gamla Delphine Boël.
Belgía Kóngafólk Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Innlent Fleiri fréttir Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Sjá meira