Gjörbreyttur leikmaður eftir fæðingu sonarins Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 29. maí 2019 23:30 Fred VanVleet. Getty/Gregory Shamus
Frammistaða Fred VanVleet í úrslitum Austurdeildarinnar átti mikinn þátt í því að Toronto Raptors er komið í lokaúrslit NBA-deildarinnar í fyrsta sinn. Það vissu kannski ekki allir hver þessi 25 ára bakvörður væri fyrir þessa úrslitakeppni enda er hann einn af nokkrum góðum liðsmönnum í liði Toronto Raptors. Frammistaða hans í síðustu þremur leikjum Toronto Raptors hefur hins vegar ýtt honum upp á stjörnuvagninn. Fred VanVleet virðist hreinlega vera gjörbreyttur leikmaður eftir fæðingu sonarins. Fred Jr. fæddist 20. maí síðastliðinn og síðan hefur pabbinn verið á miklu flugi. Eftir að Fred yngri kom í heiminn hefur Fred VanVleet farið úr því að skora 4 stig í leik og hitta úr 20 prósent þriggja stiga skota sinna í það að skora 16,0 stig í leik og hitta úr 82 prósent þriggja stiga skota sinna. Fred VanVleet skoraði 14 þrista úr aðeins 17 tilraunum í þessum þremur síðustu leikjum og hefur með því hjálpað til að opna völlinn fyrir Kawhi Leonard. Fred VanVleet lék í fjögur ár með Wichita State í háskólaboltanum en var ekki valinn í nýliðavalinu 2016. Hann fékk að taka þátt í sumardeildinni með Toronto Raptors og vann sér sæti í liðinu. Þetta er hans þriðja tímabil með Raptors og hann hefur hækkað tölfræði sína á hverju ári. Í vetur var hann með 11,0 stig og 4,8 stoðsendingar að meðaltali í deildinni. Fyrsti leikur Toronto Raptors og Golden State Warriors í úrslitaeinvíginu fer fram á heimavelli Toronto Raptors aðra nótt.
NBA Mest lesið „Andlitið á mér var afmyndað“ Fótbolti Stálheppinn að vera á lífi og gæti snúið aftur með Aroni Fótbolti Jake Paul keppir í 135 milljóna króna stuttbuxum gegn Tyson Sport „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Enski boltinn Óvænt alveg hættur Fótbolti Býðst til þess að gefa þjófnum gullið í arf Sport Favre opinberar baráttu við Parkinsons: „Fékk þúsundir heilahristinga“ Sport Drukkinn undir stýri og enn í „lederhosen“ Fótbolti Harðneitar því að hafa rekið við í leik Sport Krefjast aðgerða vegna verðlaunahafa Hvít-Rússa Sport Fleiri fréttir Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Sjá meira