Cortizo nýr forseti í Panama Atli Ísleifsson skrifar 6. maí 2019 09:17 Laurentino Cortizo hefur áður gegnt embætti landbúnaðarráðherra Panama. Vísir/EPA
Laurentino Cortizo, kallaður „Nito“, hefur unnið sigur í forsetakosningunum í Panama sem fram fóru í gær. Frá þessu greinir kjörstjórn landsins þegar búið er að telja 95 prósent atvæða. Cortizo er fyrrverandi landbúnaðarráðherra landsins og fulltrúi Lýðræðislega byltingarflokksins (PRD). Cortizo hlaut 33 prósent atkvæða og var mjótt á munum, en fulltrúi flokksins Lýðræðislegrar breytingar (CD), Romulo Roux, hlaut 31 prósent atkvæða. Romulo Roux hefur enn ekki viðurkennt ósigur sinn. Líkt og á Íslandi þarf forsetinn í Panama ekki að vera kjörinn með meirihluta atkvæða á bakvið sig. Ekki er gripið til síðari umferðar hljóti enginn hreinan meirihluta í fyrri umferðinni. Kjörstjórn á enn eftir að gefa út lokatölurnar í kosningunum. Kosningabaráttan hefur einkennst af spillingarmálum tengdum brasilíska verktakafyrirtækinu Odebrecht og málum tengdum Panamaskjölunum. Nýr forseti mun taka við embættinu af Juan Carlos Varela sem hefur gegnt embættinu frá 2014. Stjórnarskrá landsins kom í veg fyrir að hann byði sig fram að nýju.
Panama Mest lesið Pútín hótar afdrifaríkum árásum á Kænugarð Erlent „Ég sé eftir því að nokkru leyti“ Innlent Kosningavaktin: Íslendingar kjósa sér nýtt þing Innlent Ný kosningaspá: Sjö flokkar sem næðu inn manni Innlent Um 173 milljónir króna á hvern fanga í nýju fangelsi á Stóra-Hrauni Innlent Svona gullhnullungar finnast hvergi lengur nema í Grænlandi Innlent „Talandi um að skila ekki til samfélagsins“ Innlent Erfiðara að manna í frístund í austurhluta borgarinnar Innlent Fjölmenn lögregluaðgerð á Ísafirði Innlent „Er ekki hægt að hafa sér þátt fyrir hann?“ Innlent Fleiri fréttir Vilja aðkomu Kínverja að rannsókn á skemmdum sæstrengjum Pútín hótar afdrifaríkum árásum á Kænugarð Grænlendingar fagna nýjum alþjóðaflugvelli Segja að endurtaka verði kosningarnar umdeildu í Georgíu Sækja óvænt og hratt að Aleppo Segir skemmdarverk Rússa í Evrópu geta leitt til átaka Haldlögðu metmagn af kókaíni í sameiginlegri aðgerð 62 ríkja Rússar gera umfangsmiklar árásir á orkuinnviði Úkraínu Íranir hóta því að koma sér upp kjarnorkuvopnum Telja sig hafa fundið vísbendingu í máli D.B. Cooper Forsetaefni í Georgíu spilaði áður fyrir Manchester City Hinir 50 hafi allir verið „herra meðal-Jón“ Fangaskipti milli Bandaríkjanna og Kína Vopnahléið heldur en íbúar Gasa telja sig svikna Sendir Trump tóninn og hótar eigin tollum Lögreglumaður fundinn sekur um að bana 95 ára konu með rafbyssu Danska leiðin vekur lukku meðal bakhjarla Úkraínu Vopnahlé tók gildi í nótt og fólk farið að snúa aftur heim Vopnahlé milli Ísraels og Líbanon í höfn Þjóðhátíð í Nuuk vegna opnunar flugvallarins SpaceX skýtur kjarnorkuknúnum dróna út í geim Sprengdu tuttugu hús á tveimur mínútum Vildi pening í skiptum fyrir falleg orð í eyru Trumps Metárás á innviði með 188 drónum og fjórum skotflaugum Kortleggja neðanjarðarbyrgi vegna hótana Rússa Ítrekar hótanir um að hækka tolla á Kína, Mexíkó og Kanada Saksóknarar vilja Pelicot í 20 ára fangelsi Annarri ákærunni formlega vísað frá Stuðningur við Trump kostaði sambandið við Elon Saksóknari fellur frá ákærum á hendur Trump Sjá meira