Kynna óþekkta konu til leiks sem rétti Báru „ljósan mun, mögulega möppu“ Kristín Ólafsdóttir skrifar 30. apríl 2019 10:35 Þingmenn Miðflokksins, þau Gunnar Bragi Sveinsson, Anna Kolbrún Árnadóttir, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Bergþór Ólason, ræddu ýmis mál á Klaustri eins og frægt er orðið. Vísir
Þingmenn Miðflokksins segja óþekkta konu hafa afhent Báru Halldórsdóttur „ljósan mun“ á Klaustri að kvöldi 20. nóvember. Bára hafi afhent henni smáhlut á móti. Þá hafi Bára notað fjórar mínútur, sem liðu frá því að hún gekk út af Klaustri og þangað til hún steig upp í bíl sinn, til að leggja á ráðin með samverkamönnum sínum. Þetta kemur fram í bréfum lögmanns þingmannanna til Persónuverndar í apríl. Persónuvernd hafnaði í gær kröfu lögmanns þingmanna Miðflokksins um frekari gagnaöflun í máli þeirra en þeir höfðu m.a. óskað eftir frekara myndefni úr eftirlitsmyndavélum umrætt kvöld á Klaustri, upplýsingum um greiðslum inn á reikning Báru og símtöl og smáskilaboð til hennar. Stjórn Persónuverndar á þó enn eftir að úrskurða endanlega í málinu en ekki liggur fyrir hvenær það verður gert. Hafi aflað sér búnaðar og æft aðgerðir með vitorðsmanni Í úrskurði Persónuverndar, sem fréttastofa hefur undir höndum, er m.a. vísað í bréf lögmanns þingmannanna sem sent var Persónuvernd þann 1. apríl. Þar kemur fram að samkvæmt myndefninu sem þá lá fyrir hafi Bára setið í bifreið sinni fyrir utan Klaustur í tólf mínútur áður en hún fór inn á staðinn. Þá er meðhöndlun Báru á síma, „svörtu stykki“, hvítum handfrjálsum búnaði og snúru sem loddi við hann lýst í smáatriðum. Þá sé ljóst að fyrir liggi „óræk sönnun“ um að Bára hafi undirbúið aðgerð sína vel. Hún hafi til dæmis gert sér far um að „halda búnaði sínum fyrir utan sjónsvið viðstaddra með því að varðveita hann undir tösku sinni“. Þá hafi handfrjálsi búnaðurinn verið til þess að gefa þeim sem staddir voru á Klaustri „öryggi um að með þeim væri ekki fylgst“.Bára Halldórsdóttir hafnaði öllum ásökunum Miðflokksmanna um leynimakk í samtali við Fréttablaðið í gærkvöldi.Vísir/ArnarTil aðgerðanna hafi verið gengið með „skipulögðum og einbeittum hætti“. Þá séu ósannindi, sem Bára hafi „ítrekað viðhaft“ um gerðir sínar, þess eðlis að hún hljóti að hafa þurft með sér vitorðsmann til að fylgjast með ferðum manna, afla sér búnaðar, læra á hann og útfæra og æfa aðgerðir. Með vísan til þessa óskaði lögmaður Miðflokksmanna eftir viðbótarmyndefni úr eftirlitsmyndavélum við Klaustur en áður hafði aðeins verið farið yfir myndefni sem sýndi Báru. Viðbótarmyndefnið hafa Miðflokksmenn skoðað tvisvar, fyrst um miðjan apríl og svo í síðustu viku.Óþekkt kona með „ljósan mun, mögulega möppu“ Í bréfi sem lögmaður Miðflokksmanna sendi Persónuvernd 16. apríl síðastliðinn, eftir að fyrri skoðun á áðurnefndu myndefni fór fram, segir að á tilteknum tíma hafi óþekkt kona komið inn á Klaustur og „gengið ákveðið að innra rými staðarins og rakleitt, að því er virðist, til Báru Halldórsdóttur“. Um það bil 20 sekúndum síðar gangi konan rösklega út af staðnum með „einhvern smáhlut í vinstri hendi“. Þá leiði samanburður myndefnis og hljóðefnis í ljós að Bára handfjatli iðulega símtæki sitt án þess að nokkrir skruðningar heyrist á hljóðupptökunni. Það staðfesti enn frekar að hún hafi notast við sérstakan búnað í aðgerðunum og að þær hafi verið skipulagðar rækilega í samstarfi við aðra.Sjá einnig: Bára birtir greiðslurnar og segist ekki hafa neitt að fela Í tölvupóstsamskiptum lögmanns Miðflokksmanna, sama dag og seinni skoðunin á myndefninu fór fram, er bent á að þegar Bára yfirgaf Klaustur hafi liðið tæplega fjórar mínútur þar til hún aflæsti bifreið sinni. Leiða megi líkum að því að þessar mínútur hafi hún notað til skrafs og ráðagerða við samverkamenn sína utan staðarins. Þá er konan, sem fjallað var um í fyrri tölvupósti lögmannsins, aftur tekin til umfjöllunar. Á tilteknum tíma sjáist hún ganga fram hjá Klaustri og hafi í hægri hendi ljósan mun, mögulega möppu, tölvu eða spjaldtölvu. Rétt á eftir sjáist konan koma inn á staðinn en hafi þá fært muninn úr hægri endi í þá vinstri. Þegar konan gekk út af staðnum, eftir að hafa gefið sig á tal við Báru, hafi hún ekki haft ljósa muninn lengur með sér. Virðist hún því hafa afhent hann Báru, og Bára afhent konunni áðurnefndan smáhlut. Hafnar öllu leynimakki Bára sagði í samtali við Fréttablaðið í gærkvöldi að umrædd kona væri vinkona sín, sem hefði komið upp að sér og knúsað sig á Klaustri. Bára hafi svo sagt henni að hún væri upptekin og vinkonan hafi farið. Þá kannaðist Bára ekki við að þær hafi skipst á hlutum, líkt og haldið er fram í bréfi lögmannsins. „Það var enginn sem rétti mér eitt eða neitt,“ sagði Bára. Þá sagði Bára það af og frá að hún hafi rætt við einhvern fyrir utan Klaustur. Hún hafi gengið hring í kringum Dómkirkjuna því hún hafi ekki viljað vera í beinni sjónlínu við þingmennina þegar hún labbaði út af staðnum.
Miðflokkurinn Persónuvernd Upptökur á Klaustur bar Tengdar fréttir Bára birtir greiðslurnar og segist ekki hafa neitt að fela Í yfirlitinu sést að ekki bárust háar óútskýrðar greiðslur frá fyrirtækjum eða einstaklingum inn á reikninginn á tímabilinu. 26. apríl 2019 20:36 Höfnuðu kröfu Klaustursþingmanna Kröfu fjögurra þingmanna Miðflokksins um frekari gagnaöflun í Klaustursmálinu var hafnað af stjórn Persónuverndar í dag. 29. apríl 2019 18:58 Bára býður Klausturskvartettnum að bera saman greiðslurnar Lögmaður fjögurra þingmanna Miðflokksins hefur farið fram á að fá upplýsingar frá fjármálafyrirtækjum um greiðslur inn á reikning Báru Halldórsdóttur á mánaðartímabili, frá 15. nóvember til 15. desember 2018. 26. apríl 2019 14:01 Mest lesið Báðu um að fá að grafa upp Jónas Hallgrímsson Innlent Fleiri bitnir af hundunum Innlent Flugeldaverksmiðja sprakk í loft upp Erlent Deiliskipulag við Suðurlandsbraut, sundlaugar og fánar efst á dagskránni Innlent Enn ekkert spurst til Hákonar Innlent Sex úr sömu fjölskyldu skotnir til bana Erlent Lítið breyst á fimmtán árum Innlent Höggið verði mikið fyrir ríkisstjórnina segi þjóðin nei Innlent Flugmaður hjá Icelandair opnar bókhaldið Innlent Flugmenn lagt fram fleytilausn og staðan sögð erfið Innlent Fleiri fréttir Deiliskipulag við Suðurlandsbraut, sundlaugar og fánar efst á dagskránni Báðu um að fá að grafa upp Jónas Hallgrímsson Lítið breyst á fimmtán árum Flugmenn lagt fram fleytilausn og staðan sögð erfið Höggið verði mikið fyrir ríkisstjórnina segi þjóðin nei Engar vísbendingar um kvikusöfnun en ríflega sjö hundruð skjálftar Fleiri bitnir af hundunum Hagsmunir barna ágætlega tryggðir í „bagalegu óyndisúrræði“ „Þá þurfum við að gera miklu betur“ Flokkur fólksins mælist utan þings Skortur á aðstoð, mótmæli og höggstaður á ríkisstjórn Enn ekkert spurst til Hákonar Stærsti skjálfti á svæðinu síðan 2022 Mótmælendur trufluðu þingfund Má heita Freyjó og Sifjar en ekki Mikhael „Það þarf kjark til að viðurkenna mistök“ Myndataka í lágloftunum vekur athygli Grunaður barnaníðingur í varðhaldi á grundvelli almannahagsmuna Syngjandi dúx Snarpur skjálfti fannst á höfuðborgarsvæðinu Vaknaði við hávaða og raddir úr næsta herbergi Segir Ragnar Þór afhjúpa vanþekkingu á skólastarfi Flugmaður hjá Icelandair opnar bókhaldið „Andrúmsloftið er þungt og það eru allir slegnir“ Andlát á Hólmsheiði og skammtímasamningur á borðinu í flugdeilunni Nafn mannsins sem lést á Hólmsheiði Á fimmta hundrað skjálftar mælst í hrinunni Segir að honum hafi gengið illa að sofna vegna hræðslu Tveggja bíla árekstur á Suðurlandsbraut Tvö á slysadeild eftir árás lausra hunda Sjá meira
Bára birtir greiðslurnar og segist ekki hafa neitt að fela Í yfirlitinu sést að ekki bárust háar óútskýrðar greiðslur frá fyrirtækjum eða einstaklingum inn á reikninginn á tímabilinu. 26. apríl 2019 20:36
Höfnuðu kröfu Klaustursþingmanna Kröfu fjögurra þingmanna Miðflokksins um frekari gagnaöflun í Klaustursmálinu var hafnað af stjórn Persónuverndar í dag. 29. apríl 2019 18:58
Bára býður Klausturskvartettnum að bera saman greiðslurnar Lögmaður fjögurra þingmanna Miðflokksins hefur farið fram á að fá upplýsingar frá fjármálafyrirtækjum um greiðslur inn á reikning Báru Halldórsdóttur á mánaðartímabili, frá 15. nóvember til 15. desember 2018. 26. apríl 2019 14:01