Everton var mikið betri aðilinn í fyrri hálfleik. Þeir réðu lögum og lofum án þess að skapa sér mörg hættuleg færi. Staðan markalaus í hálfleik
Í síðari hálfleik hresstust heimamenn og voru sterkari í upphafi hálfleiksins áður en gestirnir frá Bítlaborginni tóku aftur völdin.
Varamaðurinn Cenk Tosun komst næst því að skora en hælspyrna hans var varinn vel af Vicente Guaita í marki Crystal Palace. Lokatölur markalaust jafntefli.
FULL-TIME Crystal Palace 0-0 Everton
— Premier League (@premierleague) April 27, 2019
The visitors go closest but are unable to find a way through in a tight encounter at Selhurst Park#CRYEVEpic.twitter.com/OS8kxVORTp
Everton er í áttunda sæti deildarinnar með 50 stig en Crystal Palace er í tólfta sætinu með 43 stig.