Son skaut Tottenham í forystu gegn City Anton Ingi Leifsson skrifar 9. apríl 2019 21:00 Heung-Min Son tryggði Tottenham 1-0 sigur á Manchester City í fyrri leik ensku liðanna í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Það dró til tíðinda strax á þrettándu mínútu er Manchester City fékk vítaspyrnu eftir að dómari leiksins, Björn Kuipers, notaði VARsjánna til þess að kanna hvort boltinn hafi farið í hönd Danny Rose. Það endaði með því að Hollendingurinn benti á punktinn. Sergio Aguero fór á punktinn og freistaði þess að koma boltanum framhjá Hugo Lloris en Frakkinn gerði sér lítið fyrir og varði frá Aguero.Hugo Lloris has now saved three penalties across all competitions this season: vs. Arsenal vs. Leicester vs. Man City Still a top 'keeper. pic.twitter.com/PCQWmEpkKq — Coral (@Coral) April 9, 2019 Markalaust var í hálfleik en Tottenham varð fyrir áfalli á 58. mínútu er Harry Kane meiddist illa eftir tæklingu Fabian Delph. Kane haltraði strax til búningsherbergja og ekki leit þetta vel út. Fyrsta og eina mark leiksins kom tólf mínútum fyrir leikslok. Eftir frábæra sendingu Christian Eriksen virtist Son vera missa boltann útaf. Hann náði að halda honum inn á, kom sér í skotfæri og skaut boltanum undir Ederson og í netið. Hrikalega mikilvægt mark og lokatölur 1-0 sigur Tottenham í fyrri leiknum. Liðin mætast á nýjan leik næsta miðvikudag á Etihad.FT Tottenham 1-0 Man City Son's goal is the difference, giving Spurs a slender advantage ahead of the second leg and denting Man City's quadruple hopes. Live reaction https://t.co/ZvkqV0mfeH#TOTMCIpic.twitter.com/OtyknDVS1A — BBC Sport (@BBCSport) April 9, 2019 Meistaradeild Evrópu