Búast við miklu af andlega veikum forsætisráðherra Birgir Olgeirsson skrifar 21. mars 2019 08:56 Ólafur Darri leikur aðalhlutverkið í þessum þáttum. FBL/Sigtryggur Ari
Breska dreifingarfyrirtækið Cineflix hefur tryggt sér réttinn að íslensku þáttaröðinni Forsætisráðherranum með Ólafi Darra Ólafssyni í aðalhlutverki. Þáttaröðin er framleidd af Sagafilm en hún mun segja frá því þegar forsætisráðherra Íslands greinist með geðhvarfasýki. Aðstoðarmaður hans þarf að leggja bæði stöðugleika ríkisins og einkalíf sitt að veði til þess að halda sjúkdómnum leyndum fyrir þjóðinni. Leikstjórar þáttanna eru Nanna Kristín Magnúsdóttir og Arnór Pálmi Arnarsson en með önnur hlutverk fara Blær Jóhannsdóttir, Aníta Briem, Þorvaldur Davíð Kristjánsson og Jóhann Sigurðsson. Handritshöfundar eru Birkir Blær Ingólfsson, Björg Magnúsdóttir og Jónas Margeir Ingólfsson. Þáttaröðin hefur hlotið þrjá handritastyrki frá Kvikmyndamiðstöð Íslands, samtals 1,8 milljónir króna, og vilyrði fyrir framleiðslustyrk fyrir árið 2019 upp á 50 milljónir króna. Ólafur Darri mun leika forsætisráðherrann en fjallað er um þáttaröðina á vef Variety í dag þar sem rætt er við Hilmar Sigurðsson, forstjóra Sagafilm. Hilmar segir þokka og persónutöfra Ólafs Darra nýtast vel til að túlka þann flókna karakter sem forsætisráðherrann er og hlakkar hann til að sjá hvernig áhorfendur munu taka í þennan óvenjulega karakter. Um er að ræða átta þætti sem meðal annars verða sýndir á RÚV en rætt er við Julein Leroux sem starfar fyrir Cineflix á vef Variety. Hann vill meina að búast megi við að Ráðherrann verði einn af bestu Norðurlandaþáttum síðastliðinna ára. Leroux segir þáttaröðina endurspegla þann nýja veruleika sem popúlismi hefur skapað.
Bíó og sjónvarp Mest lesið Páll Óskar féll í yfirlið og þríkjálkabrotnaði Lífið Eitt frægasta hús landsins enn á sölu Lífið Fimm dýrustu eignirnar sem seldust árið 2024 Lífið Segir neytendur rænda við skókaup og bendir þeim á mikilvægan límmiða Lífið Dagur og Ingunn hætt saman Lífið „Ósmekklegu plastblómin“ ekki frá forsetanum heldur RÚV Lífið Tóku hús í gegn út á Seltjarnarnesi og settu upp hjónasvítu í bílskúrnum Lífið Merzedes Club snýr aftur Lífið Fjölgar í „költinu“ hjá Kötu Odds og Þorgerði Lífið „Hann var of góður fyrir þennan grimma heim sem við búum í“ Lífið Fleiri fréttir Þau eru tilnefnd fyrir verstu kvikmyndagerðina Sjón og Eggers leiða hesta sína saman í nýjum varúlfahryllingi Deila um gervigreind skekur Hollywood í aðdraganda Óskarsins Sigurjón minnist David Lynch: „Jonni, við verðum að gera eitthvað fyrir Ísland“ Kvikmyndirnar sem beðið er eftir 2025 Embla og Timothée Chalamet glæsileg á dreglinum Krefur Disney um tíu milljarða dala Þakkar fleiru en Demi Moore fyrir langþráð metár Vestfirski hryllingstryllirinn frumsýndur vestanhafs Snerting skaut Deadpool ref fyrir rass 2024 Sjá meira