Lífið

„Fékk sjálf mjög mikið út úr því að vita að ég er ekki sú eina“

Stefán Árni Pálsson skrifar
Eva Laufey missti fóstur seint á síðasta ári og hefur þurft að vinna mikið í sjálfri sér eftir áfallið.
Eva Laufey missti fóstur seint á síðasta ári og hefur þurft að vinna mikið í sjálfri sér eftir áfallið.
Sjónvarpskonan Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir hefur verið á sjónvarpsskjáum landsmanna undanfarin ár og þá aðallega sem sjónvarpskokkur. Núna er Eva orðin dagskrágerðarmaður í þættinum Íslandi í dag á Stöð 2. Eva hefur átt viðburðarríka ævi og er hún annar gestur í annarri þáttaröð af Einkalífinu en þátturinn er einnig aðgengilegur á Stöð 2 Maraþon. Í þáttunum er rætt við fólk sem skarar fram úr á sínu sviði.

Faðir Evu var sjónvarpsmaðurinn ástsæli Hermann Gunnarsson en hún kynntist honum fyrst á unglingsaldri og náði að mynd sterkt samband við Hemma þangað til hann lést skyndilega árið 2013.

Seint á síðasta ári opnaði Eva Laufey sig um fósturmissi  sem hún varð fyrir og hvernig það hafði áhrif á hana.

„Það hjálpaði mér hvað mest að tala um þetta og það mun alltaf skila manni lengra, í staðinn fyrir að byrgja allt inni. En þetta hefur verið hellings vinna,“ segir Eva Laufey.

„Maður spáir oft í því hversu langt á leið maður væri komin en svo á sama tíma leyfi ég mér ekki að staldra við þær hugsanir og horfi bara á stelpurnar mínar og hugsa, guð minn góður hvað ég er heppin.“

Hún segist þakka fyrir það sem hún eigi á hverjum einasta degi.

„Þetta er sko ekki sjálfgefið. Það var alveg ótrúlegt hvað margar konur opnuðu sig við mig, konur sem höfðu ekki þorað að tala um þetta lengi. Þær höfðu litið á þetta sem einhverja skömm sem er alveg agalegt. Ég fékk sjálf mjög mikið út úr því að vita að ég er ekki sú eina. Ef við tölum meira um þetta og þetta er á yfirborðinu hjálpar það kannski fleiri konum í þessari stöðu.“

Í þættinum ræðir Eva Laufey meðal annars um samband sitt við föður sinn, Hemma Gunn, og hversu sárt það hafi verið að missa hann, það hvernig hún náði að tuða sig inn í sjónvarpsbransann, æskuna og æskuástina,, hvernig hún fer að því að tapa fyrir Gumma Ben í Ísskápastríðinu og margt fleira.

Hér að neðan má sjá þriðja þáttinn af Einkalífinu en þátturinn vikulegi er í loftinu á fimmtudögum á Vísi og Stöð 2 Maraþon.


Tengdar fréttir

Reyndist vel að lenda á milli tannanna á fólki

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir er 27 ára alþingismaður Sjálfstæðisflokksins. Áslaug er ungur þingmaður sem hefur náð mjög langt á stuttum tíma en hún er fjórði gestur Einkalífsins á Vísi.

Kristbjörg hefur fórnað miklu fyrir mig

Aron Einar Gunnarsson landsliðsfyrirliði og leikmaður Cardiff í ensku úrvalsdeildinni gaf á dögunum út bókina Aron – Sagan mín. Þar fer hann ítarlega yfir ferilinn, uppvaxtarárin á Akureyri og lífið í heild sinni.

Pabbi var mín besta forvörn

Heiðar Logi Elíasson er einn þekktasti brimbrettakappi landsins. Hann starfar meðal annars sem fyrirsæta, er með sítt, ljóst og fallegt hár og vakti athygli lesenda Vísis á dögunum þegar hann var fastur í Málmey í fjóra daga án vatns og matar.

Árin án móður sinnar í Rússlandi voru lærdómsrík

Katrín Lea Elenudóttir var krýnd Miss Universe í ágúst en hún mun taka þátt í 67. Miss Universe keppninni í Bangkok í desember. Katrín er í fullum undirbúningi fyrir keppnina og er hún þriðji gestur Einkalífsins á Vísi.

„Var kannski aðeins meðvirk með ástandinu“

Sjónvarpskonan Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir hefur verið á sjónvarpsskjáum landsmanna undanfarin ár og þá aðallega sem sjónvarpskokkur. Núna er Eva orðin dagskrágerðarmaður í þættinum Íslandi í dag á Stöð 2.

„Hún er algjörlega stelpan fyrir mig“

Gunnar Nelson er besti bardagamaður Íslands og hefur náð gríðarlega langt í sínu sporti og þá sérstaklega í UFC. Hann er í 14. sæti á styrkleikalistanum hjá UFC og mætir Alex Oliveira í Toronto þann 8. desember.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.