Gunnar Guðbjörnsson óperusöngvari heldur tónleikaröð í samstarfi við Salinn. Um er að ræða viðtalstónleika við óperusöngvara undir heitinu Da Capo (Frá byrjun).
„Ég hef lengi gengið með þá hugmynd að gaman væri að fá óperusöngvara í spjall, svona í líkingu við það sem Jón Ólafsson hefur gert í Af fingrum fram. Önnur fyrirmynd eru þýskir sjónvarpsþættir sem hétu Da Capo og ég fékk heitið lánað þaðan,“ segir Gunnar.
Leikhús með tónlist
Þegar hefur verið skipulögð dagskrá með sex óperusöngvurum, þeim Elmari Gilbertssyni, Kristni Sig munds syni, Dísellu Lárusdóttur, Bergþóri Pálssyni, Diddú og Þóru Einarsdóttur. „Allt eru þetta söngvarar sem hafa átt f lottan feril og túlkað ólík hlutverk,“ segir Gunnar. Hann segist vonast til að einhver sjónvarpsstöðvanna vilji taka tónleikaröðina upp.„Hugsunin með þessari röð er að brjóta upp tónleikaformið á skemmtilegan hátt,“ segir hann. „Viðkomandi söngvari syngur nokkur lög eða aríur en svo er dagskráin brotin upp með spjalli mínu við hann og sýndar eru gamlar myndbandsupptökur eða hljóðupptökur. Þannig verður þetta eins konar sýning, ekki bara tónleikar, og við erum svo lánsöm að Íslenska óperan hefur lofað aðstoð sinni og lánar okkur efni sem til er.

Fáum ekki að kenna nóg
Fyrstu tónleikarnir verða í dag, 9. febrúar klukkan 16, með Elmari Gilbertssyni. Næstu tónleikar verða 24. febrúar með Kristni Sigmundssyni. Dísella Lárusdóttur verður í Salnum 2. mars og Bergþór Pálsson þann 30. mars, Diddú 28. apríl og síðan kemur að Þóru Einarsdóttur þann 18. maí.Gunnar, sem kennir við og er skólastjóri Söngskóla Sigurðar Demetz, segir Íslendinga hafa gríðarlegan áhuga á söng. „Söngáhugi hér er meiri en víðast hvar annars staðar. Í Reykjavík eru tveir fjölmennir söngskólar, Söngskóli Sigurðar Demetz og Söngskólinn í Reykjavík. Hér í þessum skóla náum við ekki að anna eftirspurn, það má segja að vandi okkar sé að við fáum ekki að kenna nóg. Það er líka ótrúlegur fjöldi Íslendinga sem syngur í kórum.“