Umrót á alþjóðamörkuðum og spáð örlitlum samdrætti Heimsljós kynnir 10. janúar 2019 15:15 Á leið á markað í Tete, Mósambík. gunnisal
Landsframleiðsla á heimsvísu kemur til með að aukast um 2,9% á þessu ári sem er örlítill samdráttur frá nýliðnu ári. Hlutfallið mun verða 2,8% næstu tvö árin. Þetta kemur fram í spá Alþjóðabankans sem gaf í gær út árlega skýrslu um efnahagshorfur í heiminum. Spá bankans er eilítið svartsýnni en áður og skiptir þar mestu að aukinnar svartsýni gætir varðandi hagvöxt í nýmarkaðsríkjum. Tölurnar segja þó ekki alla söguna og markaðir hafa á síðustu mánuðum einkennst af aukinni óreiðu og alþjóðlegum viðskiptadeilum. Efnahagshorfur eru þessari óvissu háðar og því gerir bankinn þann vara á forspám að neikvæð áhrif þessara þátta geti verið umtalsverð á árinu. Horfur fyrir Afríku sunnan Sahara hafa versnað frá fyrri spám sem einkenndust af bjartsýni en nú er talið hæpið að umtalsverður árangur náist í baráttunni við fátækt á árinu. Umhverfisvá, átök innan landa, stjórnmálalegt umrót, og slæleg stjórnun opinberra fjármála er meðal þeirra áhættuþátta sem munu hafa hamlandi áhrif á þróun innan Afríku. Skýrslan fjallar einnig um óformlega hagkerfið en stórt, óformlegt hagkerfi er að mati skýrsluhöfunda dragbítur fyrir almenna framleiðni og dregur jafnframt úr tekjum fyrir ríkiskassann. Það telst nú vera þriðjungur af landsframleiðslu í nýmarkaðsríkjum. Góðu fréttirnar eru hins vegar þær að bjartsýni gætir varðandi viðvarandi hagvöxt upp á allt að sex prósentustig meðal allra fátækustu landanna, þó jafnframt sé varað við aukinni skuldasöfnun þeirra á meðal.Ísland í forystuhlutverkiHlutverk Íslands innan bankans mun á næstunni vaxa verulega, en Ísland tekur virkan þátt í fjölþjóðastarfi Alþjóðabankans í gegnum kjördæmi Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna. Kjördæmið og þar með ríkin átta, deila stjórnarsæti í bankanum. Um mitt ár tekur Ísland við forystuhlutverki og leiðir kjördæmisstarfið til tveggja ára. Í því felst annars vegar að Ísland mun eiga aðalfulltrúa í stjórn Alþjóðabankans, sem gegnir starfinu fyrir hönd kjördæmisins, og mun hins vegar leiða samræmingu málefnastarfs kjördæmisins.Þessi grein er hluti af samstarfi Vísis og utanríkisráðuneytisins um miðlun frétta af þróunarsamstarfi Íslands um allan heim. Fréttin birtist fyrst í Heimsljósi, upplýsingaveitu utanríkisráðuneytisins um þróunar- og mannúðarmál.
Þróunarsamvinna Mest lesið Bondi vikið úr embætti dómsmálaráðherra Erlent Ljósmyndarinn lifir ekki á „tagginu“ einu saman Innlent Kjartan Guðmundsson er látinn Innlent Framsókn næði ekki inn á þing Innlent Íslendingur tók þátt í að gera tunglskotið að veruleika Innlent Innanlandsflugi aflýst vegna veðurs Innlent Gerði grín að Macron og eiginkonu hans með frönskum hreim Erlent Þáttaskil í sögu Lýðskólans á Flateyri Innlent Oddvita sparkað af listanum og segir af sér formennsku Innlent New York Times fjallar um íslenskar pylsur: Ekkert jafnist á við eina með öllu Innlent