Menning

Fimm fengu Fjöruverðlaun í Höfða

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Verðlaunaðir rithöfundar fyrir utan Höfða í dag.
Verðlaunaðir rithöfundar fyrir utan Höfða í dag. Vísir/Vilhelm
Fjöruverðlaunin, bókmenntaverðlaun kvenna, voru afhent við hátíðlega athöfn í Höfða í dag. Verðlaunin voru afhent í þrettánda skipti og í fimmta sinn síðan borgarstjóri Reykjavíkur gerðist verndari verðlaunanna.

Bókin Ástin, Texas eftir Guðrúnu Evu Mínervudóttur vann verðlaunin í flokki fagurbókmennta.

Rökstuðningur dómnefndar

Smásagnasafnið Ástin, Texas eftir Guðrúnu Evu Mínervudóttur geymir fimm smásögur sem láta ekki mikið yfir sér; þær eru lágstemmdar á yfirborðinu en undir niðri krauma miklar tilfinningar. Sögurnar hvefast allar um ástina og fjalla bæði um nánd og skortinn á henni. Þetta er fádæma vel gert; mannlýsingar eru trúverðugar og vekja samkennd með persónum og samskiptum þeirra er lýst af slíkri dýpt og næmi að þau láta lesandann vart ósnortinn. Þrátt fyrir erfitt viðfangsefni er stíllinn léttur, lipur og myndrænn og jafnan er stutt í húmorinn. Það er unun að lesa sagnasveiginn Ástin, Texas.

Fíasól gefst aldrei upp eftir Kristínu Helgu Gunnarsdóttur vann verðlaunin í flokki barna- og unglingabókmennta.

Rökstuðningur dómnefndar

Ærslabelgurinn Fíasól er flestum kunn enda er hér um að ræða sjöttu bókina í bókaflokkinum um þessa úrræðagóðu stelpu. Söguþráðurinn fléttast um hugmyndaauðgi Fíusólar sem vekur lesandann til umhugsunar og samræðna um ýmis alvarleg málefni sem tengjast réttindum barna. Umræða um siðferðileg álitamál er sett fram af barnslegri einlægni en um leið alvöru sem dýpkar undirtón sögunnar. Persónur bókarinnar eru ekki byggðar upp af staðalímyndum heldur eru þær lifandi og margræðar rétt eins og heimur Fíusólar.

Fíasól gefst aldrei upp er margslungin bók fyrir breiðan aldurshóp þar sem Kristín Helga Gunnarsdóttir dregur upp sannfærandi myndir af átökum og uppgötvunum í lífi Fíusólar, breyskleika hennar og styrk. Fíasól færir Kristínu Helgu Fjöruverðlaunin 2019.

Þjáningarfrelsið - óreiða hugsjóna og hagsmuna í heimi fjölmiðla eftir Auði Jónsdóttur, Báru Huld Beck og Steinunni Stefánsdóttur vann verðlaunin í flokki fræðibóka og rita almenns eðlis.

Rökstuðningur dómnefndar

Þjáningarfrelsið – óreiða hugsjóna og hagsmuna í heimi fjölmiðla eftir Auði Jónsdóttur, Báru Huld Beck og Steinunni Stefánsdóttur (Mál og menning, 2018)

Bókin Þjáningarfrelsið – óreiða hugsjóna og hagsmuna í heimi fjölmiðla eftir Auði Jónsdóttur, Báru Huld Beck og Steinunni Stefánsdóttur, er mikilvægt og tímabært framlag til íslenskra bókmennta. Í okkar fámenna landi sem annarstaðar í veröldinni er tjáningarfrelsi einn af helstu mælikvörðunum á frjálsræði borgaranna - þar sem við sögu koma afskipti stjórnmálaafla og eignarhald á fjölmiðlum með tilheyrandi hagsmunaárekstrum. 

Öllu máli skiptir að standa vörð um tjáningarfrelsið, og útgáfa bókarinnar Þjáningarfrelsið er liður í þeirri vöktun hérlendis. Í bókinni fáum við að kynnast heiminum að baki fréttaflutningum. Fjallað er um raunveruleg dæmi sem gefa innsýn í aðstæður sem blaðamenn geta átt við að etja í störfum sínum og áleitnar spurningar, hugmyndir og vangaveltur sem varða grunngildi fjölmiðlunar og stöðu fjölmiðla og tjáningarfrelsis á Íslandi í upphafi 21. aldarinnar.



Níu bækur voru tilnefndar

Fagurbókmenntir

Ástin, Texas eftir Guðrúnu Evu Mínervudóttur

Ungfrú Ísland eftir Auði Övu Ólafsdóttur

Kláði eftir Fríðu Ísberg

Dómnefnd skipuðu Guðrún Lára Pétursdóttir, Jóna Guðbjörg Torfadóttir og Kristín Ástgeirsdóttir.

Fræðibækur og rit almenns eðlis

Þjáningarfrelsið – óreiða hugsjóna og hagsmuna í heimi fjölmiðla eftir Auði Jónsdóttur, Báru Huld Beck og Steinunni Stefánsdóttur

Krullað og klippt: Aldarsaga háriðna á Íslandi eftir Báru Baldursdóttur og Þorgerði H. Þorvaldsdóttur

Skiptidagar – Nesti handa nýrri kynslóð eftir Guðrúnu Nordal

Dómnefnd skipuðu Dalrún J. Eygerðardóttir, Sóley Björk Guðmundsdóttir og Unnur Jökulsdóttir.

Barna- og unglingabókmenntir

Lang-elstur í leynifélaginu eftir Bergrúnu Írisi Sævarsdóttur

Fíasól gefst aldrei upp eftir Kristínu Helgu Gunnarsdóttur

Sjúklega súr saga eftir Sif Sigmarsdóttur og Halldór Baldursson

Dómnefnd skipuðu Arnþrúður Einarsdóttir, Guðrún Jóhannsdóttir og Sigrún Birna Björnsdóttir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.