Stelpurnar í öðrum styrkleikaflokki fyrir EM-dráttinn Tómas Þór Þórðarson skrifar 21. desember 2018 10:00 Glódís Perla Viggósdóttir og stelpurnar okkar verða einum styrkleikaflokk neðar en síðast. vísir/vihelm
Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta verður í öðrum styrkleikaflokki þegar að dregið verður til undankeppni EM 2021 sem fram fer í Englandi eftir þrjú ár. Þetta kemur fram á heimasíðu evrópska knattspyrnusambandsins en stelpurnar okkar voru í efsta styrkleikaflokki fyrir dráttinn til undankeppni EM 2017 og sluppu þar með við að mæta bestu liðum Evrópu. Nú gæti íslenska liðið lent í riðli með Frakklandi, Þýskalandi, Hollandi, Spáni, Svíþjóð, Noregi, Sviss, Skotlandi eða Ítalíu sem öll eru í efsta styrkleikaflokki en þjóðunum er raðað eftir coefficient-stigum. Dregið verður í Nyon 22. febrúar en fyrstu leikirnir verða svo spilaðar í lok ágúst og byrjun september á næsta ári en síðustu leikirnir fara fram í september árið 2020. Efstu liðin í riðlunum níu komast beint á EM á Englandi 2021 og þrjú bestu liðin í öðru sæti fara sömuleiðis beint á lokamótið. Sex næstu lið sem hafna í öðru sæti fara svo í umspil um þrjú síðustu lausu sætin á Evrópumótin. Umspilið fer fram heima og að heiman um miðjan október 2020 en EM 2021 fer svo fram í júlí.Styrkleikaflokkarnir:Pottur 1: Frakkland, Þýskaland, Holland, Spánn, Svíþjóð, Noregur, Sviss, Skotland, Ítalía.Pottur 2: Austurríki, Danmörk, Ísland, Belgía, Rússland, Wales, Úkraína, Finnland, Tékkland.Pottur 3: Portúgal, Írland, Pólland, Rúmenía, Serbía, Slóvenía, Ungverjaland, Bosnía og Hersegóvína, Hvíta-Rússland.Pottur 4: Tyrkland, Slóvakía, Króatía, Norður-Írland, Grikkland, Ísrael, Kasakstan, Albanía, Moldóva.Pottur 5: Færeyjar, Malta, Makedónía, Eistland, Svartfjallaland, Georgía, Lettland, LItháen, Aserbáidjan, Kýpur, Kósóvó.
Íslenski boltinn Mest lesið Haaland sló met Agüero Enski boltinn Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Handbolti Ofursunnudagur á Sýn Sport Sport Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Falko farinn frá ÍR Körfubolti Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Enski boltinn Everton - Man. United | Hörkuslagur í Liverpool Enski boltinn Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior Fótbolti Bað dómarann um hjálp út af megnri marijúanalykt Sport Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Hólmbert bjargaði stigi Everton - Man. United | Hörkuslagur í Liverpool Casemiro og Suárez skoruðu báðir Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Bayern München skoraði ekki í fyrsta sinn í 59 leikjum Sveindís Jane og Angel City unnu mikilvægan sigur Haaland sló met Agüero Modric ætlar að halda áfram með Króatíu Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior ,,Eftir þessar síðustu 20 mínútur held ég að ég þurfi bara að leggjast niður.” Fred framlengir við Fram til 2028 Stefán og Alfons gátu ekki klárað leikinn vegna óeirða Schalke náði í stig gegn Bayern Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Raphinha nýr fyrirliði Barcelona Rúst hjá Rosenborg Arbeloa í brasi Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Uppgjörið og viðtal: Keflavík - Valur 1-2 | Valsmenn héldu út Misjafn árangur Íslendingaliðanna Uppgjörið: ÍBV-Fram 2-3 | Fram sneri taflinu við í Eyjum 16 ára gamalt myndskeið af Messi vekur athygli Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjá meira