Að minnsta kosti 373 taldir af í Indónesíu Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 24. desember 2018 15:16 Eyðileggingin eftir flóðbylgjunnar er mikil. vísir/getty
Yfirvöld í Indónesíu telja nú að að minnsta kosti 373 hafi látið lífið í landinu vegna flóðbylgjunnar sem skall á eyjunum Súmötru og Jövu á laugardag eftir virkni í eldfjallinu Anak Krakatau. Talið er að virknin í fjallinu hafi sett af stað aurskriður neðansjávar sem á móti settu flóðbylgjuna af stað með skelfilegum afleiðingum. Hátt í 1500 manns slösuðust og nú er 128 einstaklinga saknað. Íbúar á strandlengjum nálægt fjallinu hafa verið varaðir við því að vera á ströndinni þar sem hætta er á frekari flóðbylgjum. Eldgos hófst í Anak Krakatau á ný á sunnudag. Anak Krakatau er hluti af Krakatá-eyjaklasanum í Sundasundi sem liggur milli eyjanna Súmötru og Jövu. Sundasund tengir einnig Jövuhaf við Indlandshaf. Eyjaklasinn er kenndur við eldfjallaeyjuna nafntoguðu Krakatá sem sprakk í eldgosi sem hófst í maí árið 1883. Eldgosið 1883 hafði mikil áhrif á landslagið í Sundasundi en Krakatá sjálf gjöreyðilagðist í sprengingunni og aðrar eyjur tóku að myndast upp úr gosstöðvum í nágrenninu, þar á meðal Anak Krakatau sem á íslensku útleggst sem barn Krakatá.
Asía Asía - hamfarir Tengdar fréttir Tala látinna hækkar enn í Indónesíu Tala látinna hækkar enn í Indónesíu eftir eldgosið í Anak Krakatau um helgina en meira en 280 manns hafa fundist látnir. Þá eru meira en 1000 manns særðir. 24. desember 2018 08:53 222 látnir eftir flóðbylgjuna í Indónesíu Flóðbylgja skall á Indónesíu eftir eldgos í eyjunni Anak Krakatau í gærkvöldi. 23. desember 2018 11:30 Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Erlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Innlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent Fleiri fréttir Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Sjá meira
Tala látinna hækkar enn í Indónesíu Tala látinna hækkar enn í Indónesíu eftir eldgosið í Anak Krakatau um helgina en meira en 280 manns hafa fundist látnir. Þá eru meira en 1000 manns særðir. 24. desember 2018 08:53
222 látnir eftir flóðbylgjuna í Indónesíu Flóðbylgja skall á Indónesíu eftir eldgos í eyjunni Anak Krakatau í gærkvöldi. 23. desember 2018 11:30