Þetta er mat pistlahöfundar Forbes sem fjallar um viðræður Indigo Partners og WOW air um fjárfestingu þess fyrrnefnda í íslenska flugfélaginu. Lítið hefur heyrst um gang mála í viðræðunum eftir að tilkynnt var um í síðustu viku að þeim miðaði vel.
Sjá einnig: WOW air verður „ofurlággjaldaflugfélag“ ef Indigo fylgir sömu stefnu
Í pistlinum í Forbes segir að ef Franke, sem á meðal annars flugfélagin Wizz Air og Frontier, muni yfirfæra viðskiptalíkan sitt yfir á WOW Air gæti það falið í sér talsverðar breytingar á starfsemi íslenska flugfélagsins. Líklega verði farin þá leið að langar og kostnaðarsamar leiðir sem aðeins sé hægt að sinna með breiðþotum verði lagðar af, líkt og nýlegt Indlandsflug WOW air.

Nýti sér samlegðaráhrif með öðrum flugfélögum Indigo
Þó er önnur leið sem sé möguleg og það sé leið hins svokallaða sýndarflugfélags, WOW air verði flugfélag sem selji miða en fljúgi ekki sjálft undir eigin merkjum. Það þýðir að farþegar myndu kaupa miða undir merkjum WOW air en önnur flugfélög Indigo, til dæmis Wizz Air eða Frontier, myndu taka við farþeganum og koma honum á áfangastað.Þannig gæti flugfélagið sparar sér háar fjárhæðir, bakvinnsla gæti til dæmis að miklu leyti farið fram á skrifstofum Wizz Air eða Frontier auk þess sem að með því að nýta sér þjónustu annarra flugfélaga gæti WOW air nýtt sér það að launakostnaður er minni í Ungverjalandi og í Bandaríkjunum, þar sem Wizz Air og Frontier eru staðsett, en á Íslandi.
Þá er einnig nefnt að einingakostnaður Wizz Air og Frontier sé með því lægsta sem gengur og gerist og því gæti WOW air mögulega boðið betra verð á flugferðum til og frá Íslandi með þessari aðferð en Icelandair, helsti keppinauturinn.
Lesa má pistilinn í Forbes hér.