Ástæðan eru ummæli um samkynhneigða sem hann lét falla bæði á Twitter og í uppistandi fyrir nokkrum árum en ummælin hafa vakið töluverða reiði eftir að þau voru rifjuð upp í vikunni.
Tilkynnt var um það á þriðjudag að Hart myndi verða kynnir. Hann hefur nú beðist afsökunar á því sem hann kallar „ónærgætin orð“ sín og tilkynnti þá um leið að hann myndi ekki kynna Óskarinn þar sem hann vildi ekki ónæði eða truflun á hátíðinni með nærveru sinni.
And the Oscar for most homophobic host ever goes to... pic.twitter.com/fw9DTjSrhx„Ég bið hinsegin samfélagið innilegrar afsökunar á ónærgætnum orðum mínum í fortíðinni. Mér þykir leitt að ég hafi sært fólk. Ég er að þroskast og mun halda áfram að gera það. Markmið mitt er að koma fólki saman en ekki sundra okkur,“ sagði Hart í yfirlýsingu.
— Benjamin Lee (@benfraserlee) December 5, 2018
Áður hafði Hart sett myndband á Instagram-síðu sína þar sem hann sagði að stjórn Akademíunnar, sem heldur Óskarinn, hefði hringt í hann og sagt honum að annað hvort myndi hann biðjast afsökunar eða hann yrði látinn fara sem kynnir.
Í myndbandinu sagði Hart að hann ætlaði ekki að biðjast afsökunar vegna þess að hann hefði áður rætt þetta mál og hann vildi ekki halda áfram að rifja upp fortíðina.
Það hefur hann nú hins vegar gert en ummælin umdeildu sem rifjuð voru upp voru meðal annars úr uppistandi frá árinu 2010 þar sem Hart grínaðist með það að hann óttaðist að þriggja ára sonur sinn yrði samkynhneigður.