Bryndís: Loksins spilum við virkilega vel saman sem lið Bjarni Þórarinn Hallfreðsson skrifar 25. nóvember 2018 21:33 Bryndís átti góðan leik gegn sínum gömlu félögum vf.is „
Ég er bara gríðarlega ánægð. Loksins spilum við virkilega vel saman sem lið og það skóp sigurinn,“ voru fyrstu viðbrögð Bryndísar Guðmundsdóttur, leikmanns Keflavíkur eftir stórsigur liðsins á Snæfell í Dominos-deild kvenna í kvöld. Bryndís var að leika gegn sínum gömlum félögum í kvöld, en hún yfirgaf uppeldisfélag sitt, Keflavík og gekk til liðs við Snæfell áður en hún kom aftur til Keflavíkur. Bryndís segist hafa gaman að því að spila á móti Snæfelli og elski félagið. „Það er mjög gaman. Ég elska Snæfell jafn mikið og ég elska Keflavík. Mér finnst frábært að spila á móti þeim, auðvitað skrýtið en ég er uppalinn Keflvíkingur og þar slær hjartað aðeins meira.“ Keflavík byrjaði leikinn af krafti og náði góðri forystu snemma í fyrsta leikhluta. Forystuna létu Keflvíkingar aldrei af hendi. Bryndís segir það mikilvægt að ná forystu snemma leiksins. „Það er auðvitað mjög mikilvægt. Við spiluðum að mér finnst mjög góða liðsvörn. Þetta er það sem hefur vantað í leikinn hjá okkur. Þetta hefur verið að gerast síðustu fimm mínúturnar í leikjum hjá okkur en nú var þetta í 40 mínútur. Ég held að það hafi verið munurinn.“ Kristen McCarthy hefur verið öflug í liði Snæfells í vetur og var hún stigahæst með 21 stig. Keflavík spilaði hins vegar öfluga vörn á hana og þvingaði hana í erfið skot. Skotnýting McCarthy var því aðeins um 35% „Það var bara að spila góða liðsvörn og auðvitað halda henni fyrir framan sig og láta hana taka erfið skot. Þvinga hana í þessi skot og það gekk eftir.“
Dominos-deild kvenna Mest lesið Féll næstum því í Harvard vegna höfuðverkjanna Fótbolti PSG verðskuldaður sigurvegari Meistaradeildar Evrópu Fótbolti Ísak í einkaflugi út að semja við erkifjendurna Fótbolti Leikdagur í Munchen: Gummi Ben og Kjartan hita upp fyrir stærsta leik ársins Fótbolti Benedikt hættur með Tindastól Körfubolti Walker í vandræðum og verður ekki áfram hjá City Enski boltinn Þór dregur liðið úr keppni í efstu deild Körfubolti Dagur Dan kallaður inn í íslenska landsliðið Fótbolti Leiknir lætur þjálfarann fara Fótbolti Tottenham lætur fimm fara og festir fyrstu kaup sumarsins Enski boltinn Fleiri fréttir Benedikt hættur með Tindastól Þór dregur liðið úr keppni í efstu deild Stjarnan sækir tvo öfluga Þórsara „Þetta er alvöru pakki og alvöru djobb“ „Þakklát fyrir að vera á leið aftur inn í jafn frábært umhverfi“ Keypti aðstoð frá norn til að hjálpa Knicks Knicks héldu sér á lífi Næstyngsta liðið fyrst til að rústa fjórum leikjum á leið í úrslitaeinvígið Átti einstakan leik og biðinni frá aldamótum að ljúka Grindavík sækir besta leikmann Hamars/Þórs Dani Rodriguez búin að semja við Njarðvík Daníel Guðni tekur við karlaliði Keflavíkur Náfrændurnir bestir en Thunder þarf bara einn sigur enn Hörður Axel tekur við Keflavík á nýjan leik „Frábær leikmaður en Jokic átti að vinna þessi verðlaun“ „Ódrepandi“ Knicks í sögubækurnar Emilie Hesseldal í Grindavík Úlfarnir bitu frá sér og unnu 42 stiga sigur Elsti leikmaðurinn til að fá MVP atkvæði Stórleikur Martins dugði ekki til og Alba Berlin úr leik Siakam sjóðheitur þegar Pacers komst í 2-0 „Sannleikurinn“ Edwards þarf að skjóta sópinn úr höndum OKC Íslandsmeistarinn Ægir Þór: „Þetta er bara algjör þvæla“ Sylvía snýr aftur með nýliðunum: „Hefur verið nauðsynlegur tími fyrir mig“ Blóðgaði dómara Eru klárlega með gæði til að spila í efstu deild Þýskalands Tók við MVP-styttunni og skoraði svo 38 stig Finnur fyrir miklum létti: „Algjört andlegt rugl“ EuroBasket aftur í fjórum löndum og Spánn stefnir á áhorfendamet Utan vallar: Í reykjarmekki alsælunnar Sjá meira