Aðal keppinautur Hamilton í sumar, Sebastian Vettel á Ferrari, varð annar í Abu Dhabi kappakstrinum á sunnudaginn. Max Verstappen kom þriðji í mark á sínum Red Bull.
Kimi Raikkonen varð frá að hverfa með vélarbilun í sinni síðustu keppni með Ferrari. Finninn mun aka fyrir Sauber á næsta ári.
Þá var Fernando Alonso að keppa í sinni síðustu keppni í Formúlu 1. Tvöfaldi heimsmeistarinn kláraði utan stiga í ellefta sæti en McLaren bíll Fernando hefur ekki verið samkeppnisfær síðustu ár.
Spánverjinn endaði þó ferilinn á enn einum frábærum ummælum í talstöðinni þegar vélstjóri hans hvatti hann til að enda ferilinn í stigasæti. „Ég er nú þegar með 1800 stig“ svaraði Alonso.
Réttara sagt kláraði Spánverjinn feril sinn með 1899 stig. Eina stigið sem var í boði fyrir tíunda sætið um helgina hefði séð til þess að hann hefði lokið ferlinum með nákvæmlega 1900 stig.

Harkalegur árekstur varð á fyrsta hring er Renault bíll Nico Hulkenberg valt er Þjóðverjinn lenti í samstuði við Romain Grosjean.
„Komiði mér út úr bílnum, það er eldur,“ svaraði Nico í talstöðina þegar liðið spurði hvort að í lagi væri með hann. Eldurinn var þó snögglega slökktur og Hulkenberg komst heill á húfi úr bílnum, þókk sé góðum öryggisbúnaði.
Margir ökumenn voru að kveðja lið sín eða íþrótta almennt, því var andrúmsloftið eftir keppni svolítið sérstakt á þjónustusvæðum liðana.
Aðeins tvö af þeim tíu liðum í Formúlu 1 munu halda báðum ökumönnum sínum á næsta ári. Fjögur lið munu þá skipta út báðum ökumönnum sínum fyrir 2019.
Kappaksturinn í Abu Dhabi var sá síðasti á keppnistímabilinu en vetrarfríið er þó ekki langt, 2019 tímabilið byrjar í Ástralíu í mars.