Arnór og félagar töpuðu í snjónum í Moskvu | Ajax komið áfram Anton Ingi Leifsson skrifar 27. nóvember 2018 19:45 Arnór Sigurðsson hefur farið mikinn í liði CSKA upp á síðkastið en hér er hann í baráttunni í kvöld. vísir/getty Arnór Sigurðsson spilaði allan leikinn er CSKA Moskva tapaði mikilvægum stigum gegn Viktoria Plzen í C-riðli Meistaradeildar Evrópu í dag. Leikið var í snjókomu í Moskvu en með sigri myndi CSKA að minnsta kosti tryggja sér öruggt sæti í 32-liða úrslita Evrópudeildarinnar og ætti enn möguleika á að fara áfram í Meistaradeildinni. CSKA komst yfir úr vítaspyrnu strax á tíundu mínútu leiksins er lánsmaðurinn frá Everton Nikola Vlasic var feyknaöruggur á vítapunktinum. Danny Makkelie, dómari leiksins frá Hollandi, dæmdi aðra vítaspyrnu á 44. mínútu en nú til gestana frá Tékklandi. Á punktinn steig Roman Prochazka en hann lét Igor Akinfeev verja frá sér. Roman Prochazka var ekki hættur því á 56. mínútu jafnaði hann metin með furðu skoti og níu mínútum fyrir leikslok tryggði Lukas Hejda Plzen sigurinn með skalla eftir hornspyrnu. Lokatölur 2-1. Arnór spilaði eins og áður segir allan leikinn og var Skagamaðurinn öflugir en Hörður Björgvin Magnússon var í leikbanni. CSKA og Viktoria er nú með fjögur stig en Plzen er með betri markatölu fyrir lokaumferðina. Í Grikklandi unnu Ajax 2-0 sigur á heimamönnum í AEK Aþenu en Dusan Tadic skoraði bæði mörk Ajax á fjögurra mínútna kafla í síðari hálfleik. Fyrra markið kom af vítapunktinum. Ajax er því komið áfram í 16-liða úrslit Meistaradeildarinnar en AEK Aþena er á botninum án stiga. Meistaradeild Evrópu