Búist við sigri repúblikana sem sagðist mæta í hengingu Kjartan Kjartansson skrifar 27. nóvember 2018 19:43 Hyde-Smith hefur sagst ekki hafa meint neitt illt með ummælum sínum um hengingar. Vísir/EPA
Kynþáttaspenna hefur sett svip sinn á aukakosningar um annað öldungadeildarþingsæta Mississippi í Bandaríkjunum sem fara fram í dag. Kannanir benda til þess að frambjóðandi repúblikana hafi sigur þrátt fyrir ummæli sem hún lét falla um hengingar í ríki þar sem kynþáttahatarar hengdu fjölda blökkumanna á sínum tíma. Hvorki Cindy Hyde-Smith, frambjóðandi repúblikana til öldungadeildar Bandaríkjaþings, né Mike Espy, frambjóðandi demókrata, náðu yfir fimmtíu prósent atkvæða í þingkosningunum sem fóru fram 6. nóvember. Því var kosið aftur um sætið í dag. Barátta þeirra hefur verið jafnari en búist var við. Mississippi er á meðal íhaldssamari ríkja Bandaríkjanna en undiralda stuðnings við demókrata og óheppileg ummæli Hyde-Smith hafa blásið vindi í segl Espy. Á myndbandi sem birtist í kosningabaráttunni heyrðist Hyde-Smith segja við stuðningsmann að ef hann bæði hana um það myndi hún mæta í fremstu röð á opinbera hengingu. Þau ummæli féllu í grýttan jarðveg enda á Mississippi sér svarta sögu kynþáttahaturs þar sem flokkar hvítra manna hengdu svarta menn utan dóms og laga. Breska ríkisútvarpið BBC segir að slíkar hengingar hafi hvergi verið tíðari en í Mississippi frá 1882 til 1968. Espy, sem er svartur, fordæmdi ummæli mótframbjóðanda síns og kallaði þau „forkastanleg“. Hyde-Smith heldur því fram að hún hafi ekki vísað til „neins ills“ með ummælum sínum. Gagnrýnin á repúblikanann jókst enn þegar mynd birtist af henni við heimili Jeffersons Davis, forseta Suðurríkjanna sem sögðu sig frá Bandaríkjunum, með undirskriftinni „Saga Mississippi upp á sitt besta“. Frambjóðendurnir fengu um 41% atkvæða hvort um sig í upphaflegu kosningunum. Espy er sagður þurfa á því að halda að svartir íbúar ríkisins fylkist á kjörstaði til að eygja von um að sigra Hyde-Smith. Vinni sú síðarnefnda eykst meirihluti repúblikana í öldungadeild Bandaríkjaþings í 53 þingmenn gegn 47 þingmönnum demókrata og óháðra þingmanna sem vinna með þeim.
Bandaríkin Mest lesið Skipstjóri Bandero handtekinn og skipið fært til hafnar Innlent Myndi glaður sjá réttarhöld yfir skipverjum Bandero Innlent Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Innlent Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Innlent Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Innlent Vaktin: Bandero hrellir Hval 9 Innlent „Þá bara krassa lungun“ Innlent Bruni við Breiðhöfða Innlent Dekk sprakk við lendingu vélar Innlent Vasaþjófnaður daglegur atburður og verulegar fjárhæðir teknar Innlent Fleiri fréttir „Hún drap börnin“ „Það sem hann gerði, ég get aldrei endurgoldið það“ Nítján ára Norðmaður dæmdur fyrir að taka að sér leigumorð á Englandi Bandaríkjamaður sagður smygla vopnum og málaliðum til Súdan Rússnesk stýriflaug líklega lent í Póllandi Segjast hafa gert harða hríð að byltingarverðinum Minnst þrjátíu látnir í Japan Fjögur börn látin eftir loftárásir Rússa á borgir Úkraínu Neitaði að svara spurningum þingmanna Leita enn í rústunum í Japan „Við ætlum að fokking lúskra á þeim“ Stofnandi Telegram ákærður og eftirlýstur í Rússlandi Tuttugu drengir á Gothia Cup týndir Ebólan komin í metstærð á mettíma Nýr forseti hét því að beita hernum gegn glæpum Þrettán látnir hið minnsta í Japan Írönum hótað hefndum eftir árás á herstöð Bandaríkjanna Ræddu Patriot-flaugar og friðarviðræður Vill að RFK gangi harðar fram gegn bólusetningum Fólk fast í verslunarmiðstöð eftir skjálftann í Japan „Við munum ná markmiðum okkar“ Vilja að Hæstiréttur taki afstöðu Stukku fram af Geimnálinni Johnson & Johnson greiðir 693 milljarða króna vegna málsókna Bandarískir hermenn ekki látnir svara til saka á Bretlandseyjum Skjálfti að stærð 7,1 skók Japan Áhyggjur uppi vegna nýrrar brúar milli Rússlands og Norður-Kóreu Árásirnar haldi áfram skili viðræðurnar ekki sínu Önnur hitabylgja nálgast Spán Kveiktu í tveimur moskum Sjá meira