Brittanny mögnuð er Keflavík skellti Íslandsmeisturunum Anton Ingi Leifsson skrifar 21. október 2018 21:07 Brittanny Dinkins var mögnuð í kvöld. vísir/bára
Íslandsmeistarar Hauka fengu skell er Keflavík kom í heimsókn í Schenker-höllina í kvöld í Dominos-deild kvenna. Keflavík hafði betur, 86-69. Það var í raun ljóst frá upphafi í hvað stefndi. Eftir fyrsta leikhlutann leiddu gestirnir úr Keflavík með tíu stigum og voru svo 48-35 yfir í hálfleik. Svipað var uppi á tenignum í síðari hálfleik en Brittanny Dinkins var stórkostleg í liði Keflavíkur. Hún skoraði 38 stig, tók níu fráköst og gaf átta stoðsendingar. Ótrúleg. Í liði Hauka átti Þóra Kristín Jónsdóttir einnig mjög góðan leik en hún skoraði 25 stig. Næst kom LeLe Hardy með fimmtán stig og sextán fráköst. Bæði lið eru með fjögur stig eftir fyrstu fjóra leikina og sitja saman í þriðja til fjórða sæti deildarinnar, Keflavík í því þriðja á betri innbyrðis viðureign. Þrjú önnur lið eru með fjögur stig. Nýliðar KR eru á toppnum ásamt Snæfell eftir sigur á Snæfell, 72-69, í hörkuleik í DHL-höllinni í kvöld. KR byrjaði af krafti og var 22-9 yfir eftir fyrsta leikhlutann. Hægt og rólega náðu gestirnir úr Stykkishólmi að koma sér inn í leikinn og jöfnuðu svo leikinn í fjórða leikhlutanum en nýliðar KR sýndu seiglu og unnu þriggja stiga sigur, 72-69. Í liði KR var stigaskorið ansi jafnt. Kiana Johnson skoraði fimmtán stig og gaf níu stoðsendingar. Orla O'Reilly gerði fjórtán stig, tók tólf fráköst og gaf fimm stoðsendingar. Í liði Snæfells var Kristen Denise McCarthy stigahæst með 23 stig en auk þess gaf hún sex stoðsendingar. Katarina Matijevic kom næst með nítján stig og ellefu fráköst. Snæfell og KR eru jöfn á toppi deildarinnar, bæði með sex stig, en Benedikt Guðmundsson greinilega að gera góða hluti með nýliða KR. Breiðablik er enn án stiga eftir fjögurra stiga tap, 71-67, gegn Val í Vodafone-höllinni í kvöld. Góður annar leikhluti lagði grunninn að sigrinum hjá silfurliði Vals frá síðustu leiktíð. Hallveig Jónsdóttir var stigahæst hjá Val með tuttugu stig en Valur er með fjögur stig ásamt fimm öðrum liðum. Breiðablik er án stiga á botninum en Kelly Faris var stigahæst Blika með 26 stig. Skallagrímur vann átta stiga sigur á Stjörnuni, 79-71, eftir mjög kaflaskiptan leik. Bæði lið eru með fjögur stig eftir fyrstu fjóra leikina, eins og fjölmörg önnur lið í deildinni. Bryersha Blair skoraði 21 stig, tók níu fráköst og gaf sex stoðsendingar fyrir Skallagrím en Danielle Rodriguez átti enn einn stórleikinn fyrir Stjörnuna. Hún skoraði 24 stig, tók tíu fráköst og gaf átta stoðsendingar.
Dominos-deild kvenna Mest lesið Hermann hættur með ÍBV Íslenski boltinn Fáránlegt hneyksli ofurhlaupara: Breyttu Wikipedia-síðum Sport Pavel: „Ég var brjálaður vísindamaður“ Körfubolti Pabbinn fékk tattú á punginn Sport Unga hjólreiðakonan látin Sport Pavel nýr liðsmaður Bónus Körfuboltakvölds Körfubolti Ætlar sér að vinna heimsleikana í Crossfit Sport Átján ára hjólreiðakona í lífshættu Sport Bestu guttarnir í Bestu deild karla Íslenski boltinn Svona var kynningarfundurinn fyrir fyrir Bónus-deildirnar Körfubolti Fleiri fréttir Pavel: „Ég var brjálaður vísindamaður“ Meisturunum spáð sigri í Bónus deildunum Svona var kynningarfundurinn fyrir fyrir Bónus-deildirnar Álftanes lét Frakkann fara og samdi við Okeke Pavel nýr liðsmaður Bónus Körfuboltakvölds Helena verður á skjánum í vetur Derrick Rose leggur skóna á hilluna Mögnuðu tímabili nýliðans Clark lokið: „Get orðið miklu betri“ Æfir eftir stæla þjálfarans og banna leikmenn í landsliðið Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sjá meira