Fyrrverandi Brexit-ráðherra hvetur til uppreisnar Kjartan Kjartansson skrifar 14. október 2018 11:14 Davis sagði af sér í júlí vegna óánægju með hvernig May forsætisráðherra lagði upp viðræður við Evrópusambandið. Vísir/EPA
Ráðherrar í bresku ríkisstjórninni ættu að sýna samstöðu og gera uppreisn gegn Theresu May forsætisráðherra til að andæfa áætlun hennar um útgönguna úr Evrópusambandinu. Þetta segir David Davis, fyrrverandi Brexit-ráðherra, í ríkisstjórn May. Miklar væringar hafa verið innan Íhaldsflokks May undanfarin misseri vegna Brexit. Fyrst og fremst takast félagar í flokknum um á hvaða forsendum eigi að semja við Evrópusambandið um hvernig samskiptunum verður hagað eftir útgöngu Breta í mars á næsta ári. May lagði fram áætlun sína í sumar. Hún hefur meðal annars lagt til að Bretar verði tímabundið áfram í tollabandalagi Evrópu á meðan fundinn er lausn á hvernig landamærum við Írland verður háttað. Davis sagði af sér í kjölfarið vegna ósættis við stefnu forsætisráðherrans og leiðtoga flokksins. Hann gagnrýnir samningatækni ríkisstjórnarinnar og segir hana haldna „grundvallargöllum“ í grein sem hann skrifar í Sunday Times í dag. Áætlun May sé „óásættanleg“. „Þetta er ein stærsta ákvörðun sem ríkisstjórn hefur tekið á síðari tímum,“ skrifað Davis. Fleiri áhrifamiklir félagar í Íhaldsflokknum eru sömuleiðis sagðir hafa áhyggjur af áætlun May, að því er segir í frétt breska ríkisútvarpsins BBC. Sumir harðlínumenn í flokknum hafa haldið því fram að Bretland ætti að ganga úr Evrópusambandinu án nokkurs samnings frekar en að leyfa sambandinu að setja þeim skilyrði.
Brexit Mest lesið Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Erlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Fleiri fréttir Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Sjá meira