Fantasíur hins einstaka Karls Dunganon Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar 6. október 2018 10:00 Harpa Björnsdóttir sýningarstjóri við uppsetningu sýningarinnar. Fréttablaðið/?Sigtryggur Ari
Yfirlitssýning á verkum Karls Einarssonar Dunganon verður opnuð í Listasafni Íslands í dag, laugardaginn 6. október. Sýningarstjóri er Harpa Björnsdóttir. Karl Dunganon fæddist á Íslandi árið 1897 en flutti barnungur til Færeyja og síðar til Danmerkur þar sem hann lést árið 1972. Hann arfleiddi íslensku þjóðina að öllum myndum sínum og handritum. Myndverkin eru varðveitt í Listasafni Íslands en ritverk og handrit eru í Þjóðskjalasafni Íslands. Á sýningunni, sem nefnist Véfréttir, verður fjöldi verka úr myndröð sem Dunganon gerði við ljóðabálk sinn Oracles of St. Kilda. Verkin eru unnin á tímabilinu 1946-1960. „Á sýningunni eru um hundrað verk. Þetta eru fantasíur, allar í sömu stærð, og sagðist Dunganon hafa notað við gerð þeirra liti sem hann stal frá krökkum. Svo lakkaði hann yfir þær í lokin sem gaf þeim gullinn blæ. Þetta eru ótrúlega fallegar myndir sem hann gerði við ljóðabálkinn, en hvernig hann tengdi saman ljóð og mynd er eitthvað sem hefur reynst illmögulegt að fá botn í, þrátt fyrir mikla yfirlegu,“ segir Harpa.Ákveðin tímamót Fyrsta opinbera sýningin hér á landi á verkum Dunganons var árið 1976, fjórum árum eftir andlát hans. „Vinur hans, Björn Th. Björnsson listfræðingur, fékk verk eftir hann lánuð frá listasafninu og sýndi þau á Listahátíð í Bogasal Þjóðminjasafnsins,“ segir Harpa. „Vinkona hans, Helga Hjörvar, fékk árið 2005 lánuð um þrjátíu verk sem hún sýndi í Norðurlandahúsinu í Færeyjum og árið 2009 sýndi hún um sjötíu verk hans í Kaupmannahöfn. En þetta er fyrsta yfirlitssýningin á verkum hans í þessu safni sem varðveitir þau og eru það ákveðin tímamót.“Heillaði fólk Spurð um Dunganon segir Harpa: „Hann var mjög sérstakur persónuleiki og sérstæður listamaður. Hann fæddist á Íslandi og kallaði sig alltaf Íslending þótt hann hefði alist upp í Færeyjum. Hann bjó öll sín efri ár í Danmörku en hafði farið um Evrópu þar á undan, verið í Frakklandi, Belgíu og á Spáni. Hann tók sér ungur nafnið greifi af Dunganon og sæmdi sig einnig titlinum hertogi af St. Kildu, auk annarra titla og skáldanafna. Hann gaf út fyrstu ljóðabók sína árið 1931 en seinna fór hann að teikna og mála. Hann setti sig oft í ákveðið hlutverk, hafði gaman af því að vera öðruvísi og jafnvel ganga pínulítið fram af fólki. Hann kom úr mjög borgaralegu umhverfi og var á margan hátt mjög borgaralegur sjálfur, en á sama tíma var hann í algjöru andófi gegn alls konar reglum og kreddum borgaralegra viðhorfa. Hann var vel lesinn, las mikið heimspeki og dulspeki, og þegar hann var kominn á efri ár töluðu margir um hann sem hálfgerðan lífsspeking. Hann virðist hafa heillað fólk sem persóna og vonandi heillar hann fólk enn með verkum sínum.“ Sýningin stendur fram í janúar og samhliða henni verður gefin út bók um Dunganon þar sem fjallað er um ævintýralegt lífshlaup hans, sem og höfundarverk. Harpa Björnsdóttir og Helga Hjörvar ritstýra bókinni sem kemur út á næstu mánuðum.
Birtist í Fréttablaðinu Menning Mest lesið Segir neytendur rænda við skókaup og bendir þeim á mikilvægan límmiða Lífið Jónsi og Una Torfa létu sig ekki vanta á opnunarhátíð Krafts Lífið „Ósmekklegu plastblómin“ ekki frá forsetanum heldur RÚV Lífið Páll Óskar féll í yfirlið og þríkjálkabrotnaði Lífið Eitt frægasta hús landsins enn á sölu Lífið Merzedes Club snýr aftur Lífið Fjölgar í „költinu“ hjá Kötu Odds og Þorgerði Lífið Guðlaugur og Anný Rós keyptu einbýli í Garðabæ Lífið Þungarokkarar komast ekki til Íslands Lífið Fimm dýrustu eignirnar sem seldust árið 2024 Lífið Fleiri fréttir Hryllingsleikrit um árið án sumars en þó ekki 2024 Margar milljónir í menninguna Halli með nýtt hlaðvarp: Getur loksins verið í augnhæð með fólki Skiluðu tillögum um uppbyggingu Jónasarstofu í Öxnadal Fullt út úr dyrum á sjóðheitri ljósmyndasýningu Ætla að halda Lífskviðuna þrátt fyrir andlát Ásgeirs í nótt Katrín dustar rykið af visku sinni Anna Rós hlaut Ljóðstaf Jóns úr Vör Létu sig ekki vanta á frumsýningu Ungfrú Íslands Bókamarkaðurinn færir sig um set Troðfullt hús og standandi lófaklapp „Persónan Elmar er alls ekki Helgi“ Skrumskæld mynd af Helga Skúla í Vigdísarþáttum Ætlar aldrei aftur til Tenerife: „Þetta er hræðilegur staður“ Metsölulisti bókaútgefenda sé „ómarktækur“ Þetta voru mest seldu bækur ársins 2024 Af hverju er þessi kona á öllum auglýsingaskiltum? Sjá meira