Lífið

Gaman að hafa eitthvað að hlakka til

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Yfirbragð tónleikanna verður rólegt og rómantískt að sögn Helenu Eyjólfs?og fullt af skemmtilegum sögum og minningum.
Yfirbragð tónleikanna verður rólegt og rómantískt að sögn Helenu Eyjólfs?og fullt af skemmtilegum sögum og minningum. Fréttablaðið/Sigtryggur Ari
Helena Eyjólfsdóttir kemur fram á fyrstu Tíbrártónleikum haustsins í Salnum í kvöld og syngur lög frá sínum langa og farsæla ferli, sum hver í öðrum og djassaðri útsetningum en við eigum að venjast. Með henni spila Jón Rafnsson, Stefán Már Magnússon og Karl Olgeirsson og einnig strengjakvartett og söngvarinn góðkunni, Friðrik Ómar, verður sérstakur gestur

Helena kveðst fremur lítið hafa sungið að undanförnu. „Ég hélt ekki að ég mundi halda fleiri tónleika í Salnum en félagar mínir ýttu á mig og aðstandendur Salarins líka. Það er voða gaman að vera í þessu Tíbrárdæmi, tónleikarnir hafa dálítið klassískt yfirbragð og það er alveg yndislegt. Það gerir gífurlega mikið fyrir lögin að vera með þessar flottu útsetningar hans Kalla Olgeirs og fiðlurnar. Við erum búin að æfa vel og allt er að smella.“

Helena er á áttræðisaldri og kveðst þakklát fyrir að geta enn sungið. „Ég er svo heppin með heilsuna,“ segir hún og er rukkuð um góð heilsueflingarráð. „Ég fer í göngu á hverjum degi og ráðlegg öllum að gera það sem geta. Það er dásamlegt að labba í þrjú kortér, klukkutíma. Ekki bara til að viðhalda liðleika heldur er það líka svo gott andlega. Maður hugleiðir sitthvað á göngunni og líður svo vel á eftir.“

Góða gönguleiðir eru á Akureyri þar sem Helena býr. „Ég labba mikið í Kjarnaskógi og á leirunum fyrir innan flugvöllinn, um gömlu brýrnar, þar er svo gott næði, meðal annars til að rifja upp texta. Suma texta man ég alla tíð, eins og þeir séu komnir á harða diskinn, en öðrum þarf ég að dusta rykið af ef tónleikar eru fram undan. Mér finnst svo mikilvægt að kunna textana vel þegar ég syng. Í barnaskóla var ég fljót að læra ljóð utan að og sem betur fer held ég þeim hæfileika enn að geta lært.  Það er heilmikil áskorun að koma fram í Salnum, ég neita því ekki. En það er gaman að takast á við verkefni og hafa eitthvað að hlakka til.“

Tónleikarnir hefjast klukkan 20.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.