Segir Keflavíkurflugvöll þann langversta í Evrópu sem bitni á afkomu flugfélaganna Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 25. september 2018 10:45 Icelandair býður upp á nýja flugtíma frá og með næsta vori. Vísir/Vilhelm „
Ég er þeirrar skoðunar, og ef maður horfir á þessar skiptistöðvar sem við erum að keppa við, þá er Keflavíkurflugvöllur langversti flugvöllur í Evrópu, það er ekkert hægt að neita því,“ segir Pétur J. Eiríksson, fyrrverandi yfirmaður hjá Icelandair til 28 ára. Það er hans mat að staðan á Keflavíkurflugvelli bitni á afkomu Icelandair og Wow Air.Pétur skrifaði grein ummálið í Morgunblaðinuum helgina auk þess sem að hann ræddi um stöðu Keflavíkurflugvallar íMorgunútvarpinu á Rás 2 í morgun.„Ég skrifaði þessa grein vegna þess að ég var farinn að hafa verulegar áhyggjur af ástandinu í flugstöð Leifs Eiríkssonar og áhrifum þess ástands á flugfélögin. Ég álit að ástandið sé þannig að það sé farið að grafa undan leiðakerfi flugfélaganna og þannig afkomu þeirra,“ sagði Pétur en afkoma bæði Icelandair og Wow hefur farið versnandi að undanförnu líkt og fjallað hefur verið um í fjölmiðlum.Fór Pétur yfir það viðskiptamódel sem Icelandair og Wow byggja starfsemi sína á en það er svokallað skiptistöðvakerfi sem tengir saman flugleiðir á milli Bandaríkjanna og Evrópu. Miðjan í kerfinu er Keflavíkurflugvöllur og segir Pétur að til þess að slíkt kerfi virki sem skyldi þurfi allt að ganga upp, litlir sem engir hnökrar megi vera á keðjunni.„Því miður er það þannig að með okkar miðju, með flugstöð Leifs Eiríkssonar, að hún er að þjóna farþegum mjög illa, vegna þrengslna og ýmis konar aðstæðna sem núna kemur niður á flugfélögunum þegar þeir [farþegar innskot blm.] upplifa flugstöðina sem slæma og þar af leiðandi þjónustu flugfélaganna sem slæma.“Pétur J. Eiríksson starfaði um árabil hjá Flugleiðum og Icelandair.Fréttablaðið/Vilhelm.Ekki skemmtilegt upplifun fyrir farþega að fara úr flugvél í rútu Segir hann að Isavia hafi gert afdrífarik mistök þegar ákveðið hafi verið að fjölga svokölluðum útistæðum í stað þess að leggja áherslu á rampa eða rana sem tengi flugvélar beint við flugstöðina. Útistæðin gera það að verkum að farþegar þurfa að stíga út úr flugvélunum og upp í rútu sem keyrir þá að flugstöðinni.„Þið getið ímyndað ykkur hvernig ástandið hefur verið í morgun í þessu roki og rigningu. Að fara út úr flugvél út úr stiga, út í þetta veður, út í rútu og bíða þar þangað til að rútan fyllist. Keyra síðan inn í flugstöð sem er allt of lítil. Olnboga sig þar í gegnum rýmið til þess að fara í langa biðröð í vegabréfaskoðun í stað þess að eiga kannski gæðastund yfir kaffibolla, þá er að hypja sig aftur út að hliði, bíða þar eftir rútu, bíða í rútu og aftur út í óveðrið til þess að komast um borð í næstu flugvél,“ sagði Pétur.Ljóst var á máli hans að Pétur átti einkum við svokallaða tengifarþega sem oftar en ekki yfirgefa ekki flugstöðina er þeir bíða eftir flugi á lokaáfangastað. Að mati hans væri ljóst að flugfélögin, í það minnsta Icelandair, væru farin að missa sína bestu viðskiptavini og rekja mætti það til aðstæðna á Keflavíkurflugvelli.„Bestu viðskiptavinir flugfélaga eru viðskiptavinir sem koma aftur og aftur vegna þess að þeim líkar þjónusta flugfélagsins. Þeir vita það að þeir fá hnökralausa þjónustu. Flugfélagið flýgur þangað sem þeir vilja fara, á þeim degi og á þeim tíma sem þeir vilja ferðast og þeir komast þangað á tíma. Þeir meta stundvísi. Ástandið í Leifsstöð er orðið þannig að Icelandair getur ekki lengur boðið upp á hnökralausa þjónustu.“ Keflavíkurflugvöllur.Fréttablaðið/Anton Brink.Var eitt sinn verðlaunaflugvöllur Keflavíkurflugvöllur var nýverið valinn sautjándi versti flugvöllur Evrópu með tilliti til stundvísi flugáætlana, þjónustu, almenns rekstrar, og ánægju viðskiptavina samkvæmt úttekt ferðaþjónustuvefsins AirHelp. Slíkar fregnir koma Pétri ekki á óvart sem tekur enn dýpra í árinni en úttekt AirHelp.„Fyrir nokkrum árum síðan var Keflavík margverðlaunuð fyrir að vera besta skiptistöð í Evrópu. Vera einn besti og þægilegasti flugvöllur í Evrópu. Við höfum séð núna undanfarin ár hvernig vellinum hefur verið að hraka. Ég er þeirrar skoðunar, og ef maður horfir á þessar skiptistöðvar sem við erum að keppa við, þá er Keflavíkurflugvöllur langversti flugvöllur í Evrópu, það er ekkert hægt að neita því. Þá er ég að miða við skipistöðvar og alþjóðaflugvelli,“ sagði Pétur í Morgunútvarpinu á Rás 2 í morgun.
Fréttir af flugi Icelandair WOW Air Tengdar fréttir Icelandair bregst við ójafnvægi í leiðakerfinu Icelandair mun bjóða flug til Evrópu rétt fyrir hádegi og til Norður-Ameríku að kvöldi frá og með maí á næsta ári. 10. september 2018 14:58 Uppbygging atvinnulífs á Suðurnesjum ráðist að miklu leyti af fjölda alþjóðlegra samgöngutenginga Skýrslan Suðurnes 2014 – Sviðsmyndir um mögulega þróun atvinnulífs á Suðurnesjum var kynnt í dag. 7. maí 2018 18:49 Keflavíkurflugvöllur þrefaldast í stærð Spáð er mikilli fjölgun tengifarþega á þessu ári en verulega dregur úr fjölgun erlendra ferðamanna. 30. maí 2018 21:15 Mest lesið Ferjuleiðir taka við rekstri ferjunnar Baldurs Viðskipti innlent „Það fyrsta sem ég segi er „Góða morgun““ Atvinnulíf Íslensk fyrirtæki geti endurheimt verulegar fjárhæðir Viðskipti innlent Birta lista yfir kaupendur: Á annað þúsund keypti fyrir tuttugu milljónir Viðskipti innlent Þau keyptu fyrir tuttugu milljónir í útboðinu Viðskipti innlent Í hópi þeirra sem hlutu Viator Experience-verðlaunin Viðskipti innlent Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Viðskipti innlent Tvöfaldar tolla á innflutt stál og ál Viðskipti erlent Sektaðar fyrir að trassa með verðmerkingar á Selfossi Neytendur Heiður Björk tekur við eftir brotthvarf Gunnars Egils Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ferjuleiðir taka við rekstri ferjunnar Baldurs Íslensk fyrirtæki geti endurheimt verulegar fjárhæðir Í hópi þeirra sem hlutu Viator Experience-verðlaunin Heiður Björk tekur við eftir brotthvarf Gunnars Egils GeoSilica hefur framleiðslu á Þeistareykjum Sigurður Jökull stýrir Cruise Iceland Taka við nýjum forstöðumannastöðum hjá Krónunni Dolores ráðin forstöðumaður hjá OK Shein ginni neytendur til skyndikaupa Annar banki býður betra verð en hinn með sömu eigendur Þau keyptu fyrir tuttugu milljónir í útboðinu Sameining við Kviku banka mun taka langan tíma „Grindavíkuráhrifin“ leiða til talsverðrar hækkunar hjá nágrönnum Indó skoraði hæst í Sjálfbærniásnum Fasteignamat hækkar um 9,2 prósent á milli ára Bein útsending: Fasteignamat 2026 kynnt Verðbólga lækkar um 0,4 stig Kvika vinsælasta stelpan á ballinu Bein útsending: Viðurkenningarhátíð Sjálfbærniássins Auður hefur innreið sína á húsnæðislánamarkað Vextir lækka hjá Íslandsbanka Lokun kísilvers á Bakka: „Þetta er grátbölvað“ Arion vill sameinast Kviku Birta lista yfir kaupendur: Á annað þúsund keypti fyrir tuttugu milljónir Bein útsending: Ársfundur Samáls Vilja að stjórnvöld greiði leið kísilversins á Bakka Play tekur flugið til Agadir Halla nýr yfirlögfræðingur Emblu Medical Stöðva rekstur á Bakka í júlí og segja 80 manns upp störfum Heimar mega kaupa Grósku Sjá meira
Icelandair bregst við ójafnvægi í leiðakerfinu Icelandair mun bjóða flug til Evrópu rétt fyrir hádegi og til Norður-Ameríku að kvöldi frá og með maí á næsta ári. 10. september 2018 14:58
Uppbygging atvinnulífs á Suðurnesjum ráðist að miklu leyti af fjölda alþjóðlegra samgöngutenginga Skýrslan Suðurnes 2014 – Sviðsmyndir um mögulega þróun atvinnulífs á Suðurnesjum var kynnt í dag. 7. maí 2018 18:49
Keflavíkurflugvöllur þrefaldast í stærð Spáð er mikilli fjölgun tengifarþega á þessu ári en verulega dregur úr fjölgun erlendra ferðamanna. 30. maí 2018 21:15