Leikmaður Vikings hótaði að skjóta mann á liðshótelinu Henry Birgir Gunnarsson skrifar 25. september 2018 15:00 Það er eitthvað furðulegt í gangi hjá Everson Griffen. vísir/getty
Besti varnarmaður Minnesota Vikings, Everson Griffin, spilaði ekki með liðinu um nýliðna helgi er Víkingunum var slátrað af Buffalo Bills. Þjálfari liðsins, Mike Zimmer, sagði að Griffen hefði ekki spilað af persónulegum ástæðum. Það hefur síðan komið í ljós að eitthvað mjög sérkennilegt var í gangi hjá Griffen kvöldið fyrir leik á liðshóteli Vikings. Að því er ABC í Minneapolis segir þá voru læti í Griffen. Hann hljóp fram og til baka í „lobbíi“ hótelsins og á einhverjum tímapunkti hótaði hann að skjóta einhvern. Aldrei sást nein byssa. Skíthræddir starfsmenn hótelsins forðuðu sér á bak við í öllum látunum. Griffen ku hafa viljað láta hleypa sér inn á herbergi og hótaði einnig að ganga í skrokk á starfsfólki. Leikmaðurinn var ekki handtekinn en yfirgaf hótelið eftir að hafa rætt við lögreglu. Ekki er vitað hvað sé að plaga Griffen en talsmenn Vikings segja að þeir séu að vinna í málum Griffen með honum.
NFL Mest lesið Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Markvörður ársins náði að stöðva Orra Fótbolti „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Enski boltinn Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Fleiri fréttir Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Markvörður ársins náði að stöðva Orra Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Einmana á botninum í hléinu „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Fram steinlá gegn nýliðunum og FH vann Þór Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Ísland náði fram hefndum og fagnaði titlinum Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Eiður með gæsahúð á Anfield Ída Marín og Guðrún skoruðu í stórsigri Atli Steinn kláraði Stjörnuna Marc McAusland tekur við Njarðvík Ekki unnið á Anfield í 14 ár Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Hildur skoraði í sigri Fabregas hafði betur gegn Þóri Tryggvi hafði betur gegn Rubio Í hvínandi gír í Noregi Emelía tryggði Köge sigur Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Fyrstur síðan David Robinson var og hét Sjá meira