Bíó og sjónvarp

Rökkur endurgerð fyrir bandarískan markað

Þórhildur Erla Pálsdóttir skrifar
Sigurður Þór Óskarsson og Björn Stefánsson leika fyrrum elskendurna Einar og Gunnar.
Sigurður Þór Óskarsson og Björn Stefánsson leika fyrrum elskendurna Einar og Gunnar. Aðsend
Orion Pictures hefur tryggt sér réttinn að endurgerð íslensku spennumyndarinnar Rökkur fyrir bandarískan markað. Þetta kemur fram í frétt Hollywood Reporter. Erlingur Thoroddsen leikstjóri og handritshöfundur myndarinnar mun skrifa handritið fyrir endurgerðina.

Rökkur segir frá Gunnari, sem fær símhringingu um miðja nótt frá fyrrverandi kærastanum sínum, Einari. Hann er í miklu uppnámi og Gunnar er hæddur um að hann muni fara sér að voða og keyrir til hans upp á Snæfellsnes þar sem hann hefur hreiðrað um sig í afskekktum bústað.

Strákarnir gera upp samband sitt í bústaðnum en fljótlega kemst Gunnar að því að vandamálið er stærra en hann hefði nokkurn tímann getað ímyndað sér og eru þeir ekki einir.

Búi Baldvinsson, Baldvin Kári Sveinbjörnsson og Erlingur Óttar Thoroddsen framleiddu.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.