Stephen Nielsen búinn að skora fleiri mörk en allir hinir markverðirnir til samans Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 18. september 2018 15:30 Stephen Nielsen. Mynd/S2 Sport
Stephen Nielsen, markvörður ÍR-liðsins, var þriðji markahæsti leikmaður liðsins á móti Aftureldingu í gær þrátt fyrir að fara aldrei í sókn. Stephen Nielsen skoraði fjögur mörk yfir allan völlinn í gær og hefur þar með skorað fimm mörk í fyrstu tveimur umferðum Olís deildar karla. Það voru aðeins Bergvin Þór Gíslason (10) og Sturla Ásgeirsson (6) sem skoruðu fleiri mörk fyrir ÍR-liðið á Varmá í gærkvöldi en umræddur Stephen Nielsen. Á meðan Stephen Nielsen hefur skorað fimm mörk hafa allir hinir markverðir deildarinnar skorað samanlagt fjögur mörk samkvæmt tölfræði HBStatz. Stephen Nielsen er einnig búinn að bæta árangur sinn í fyrra þegar hann skoraði samtals 4 mörk í 17 leikjum. Björgvin Páll Gústavsson skoraði flest mörk markvarða í deildarkeppninni í fyrra eða 12 mörk en í 2. sæti komu þeir Grétar Ari Guðjónsson og Viktor Gísli Hallgrímsson með fimm mörk hvor. Grétar Ari og Viktor Gísli hafa báðir opnað markareikning sinn í vetur en eru engu að síður langt á eftir Stephen Nielsen.Flest mörk markvarða í Olís deild karla 2018-19(Tölfræði frá HB Statz eftir 2 umferðir) Stephen Nielsen, ÍR 5 Grétar Ari Guðjónsson, Haukum 1 Arnór Freyr Stefánsson, Aftureldingu 1 Viktor Gísli Hallgrímsson, Fram 1 Pawel Kiepulski, Selfoss 1Hér fyrir neðan má sjá mörkin sem Stephen Nielsen skoraði í leiknum í gær.
Olís-deild karla Mest lesið Bo Johansson er látinn Fótbolti Lætur Ingu Sæland heyra það: „Óboðlegt og frekar hrokafullt“ Sport Freyr fann sig knúinn til að setja nýja reglu Fótbolti Örlög Elísabetar í höndum fyrrverandi markvarðar Liverpool Fótbolti Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Enski boltinn „Stelpurnar vissu ekki einu sinni af þessu“ Fótbolti Flautuþristar og frábær tilþrif: „Hún er eins og jarðýta“ Körfubolti Bakgarðsáskorunin: Semur ljóð á hlaupum Sport Lærir í Harvard meðan hann jafnar sig Enski boltinn Amin fékk mynd af sér með skúrki Bayern Fótbolti Fleiri fréttir Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Uppgjörið: Fram - Valur 25-30 | Valur stöðvaði sigurgöngu Fram FH skoraði hátt upp í fimmtíu mörk gegn Fram Juku verulega á áhyggjur Norðankvenna Cornelia snýr aftur til Íslands Viktor Gísli varð fárveikur á HM Bikarmeistararnir flugu áfram og Afturelding vann í Kópavoginum Íslenskir leikmenn að skila sigrum í Meistaradeildinni Gengi Hauks og félaga ætlar ekki að batna Norska stjarnan lenti í árekstri við dómara Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Sjá meira