Hverjir eru í framboði?
Stjórnmálalandslagið í Svíþjóð er nokkuð ólíkt því sem venjast mátti fyrir fáeinum áratugum síðan. Líkt og í öðrum ríkjum Evrópu hafa hinar hefðbundnu vinstri- og hægriblokkir dalað og nýir stjórnmálaflokkar rutt sér til rúms. Í þessu tilfelli er það flokkur Svíþjóðardemókrata. Þróunin í Svíþjóð er svipuð því sem þekkist í Danmörku og Þýskalandi. Þar eru flokkar sem kenna sig við þjóðernishyggju og herta innflytjendalöggjöf að sækja í sig veðrið og gera hinum hefðbundnu valdablokkum erfitt að starfa með traustan meirihluta að baki sér.Í Svíþjóð eru átta flokkar í framboði sem taldir eru eiga möguleika á að komast inn á þing. Það eru sömu flokkar og eiga þegar fulltrúa á þingi. Þeir sem hafa helst verið orðaðir við embætti forsætisráðherra eftir kosningar eru Stefan Löfven, sitjandi forsætisráðherra og formaður Jafnaðarmannaflokksins, Ulf Kristersson, formaður hægriflokksins Moderaterna, og loks Jimmie Åkesson, formaður Svíþjóðardemókrata. Þó þykir það ólíklegt að sá síðastnefndi verði hlutskarpastur.

Miðflokkurinn, Vinstriflokkurinn og Kristilegir Demókratar hafa sótt í sig veðrið að undanförnu en sá síðarnefndi hefur náð að bæta fylgi sitt á allra síðustu dögum. Fyrir fáeinum vikum þótti flokkurinn líklegur til að hrapa út af þingi. Formaður Miðflokksins Annie Lööf hefur verið nefnd ástæða fylgisaukningar miðjumanna.
Nýlegar kannanir benda til þess að hún sé sá flokksformaður sem flestir Svíar bera traust til. Þá er ónefndur Frjálslyndi flokkurinn undir forystu Jan Björklund en hann hefur átt í vandræðum með að ná til sín kjósendum sem eru óánægðir með ríkisstjórnina eða aðra hægriflokka í stjórnarandstöðu.
Hver eru málefnin?
Fregnir af ofbeldisfullum glæpum og skemmdarverkum eru tíðar frá Svíþjóð. Í sumar komst það til dæmis í heimsfréttirnar að kveikt hefði verið í um áttatíu bílum í Gautaborg og öðrum borgum á vesturströnd Svíþjóðar. Þá hafa ofbeldisfullir glæpir færst í vöxt þar sem skotvopnum og jafnvel sprengiefni er beitt.Löggæslumál eru því áberandi í kosningabaráttunni en Svíþjóðardemókratar vilja meðal annars kenna um lélegu landamæraeftirliti sem hleypi erlendum glæpahópum óhindrað til landsins. Stefan Löfven, forsætisráðherra, hefur meðal annars heitið því að taka harðar á glæpum en það ræðst á sunnudaginn hvort kjósendur treysta honum til þess.


Hvernig fara kosningarnar?
Það stefnir í að Jafnaðarmannaflokkurinn verði áfram stærsti flokkur landsins en Svíþjóð hefur verið eitt sterkasta vígi jafnaðarmanna í áratugi. Hins vegar mælist flokkurinn með um 25 prósent atkvæða. Yrðu úrslitin á þeim slóðum yrði það versta kosning flokksins í yfir hundrað ár.Moderaterna og Svíþjóðardemókratar keppast þá um annað sætið en báðir flokkar mælast með fylgi á bilinu 17 til 20 prósent. Aðrir flokkar mælast með nokkru minna fylgi og eiga því seint tilkall til forsætisráðherraembættisins.
Þó að Jafnaðarmannaflokkurinn verði stærstur allra flokka þýðir það ekki að Stefan Löfven eigi sjálfkrafa kröfu á embætti forsætisráðherra. Allir flokkarnir skipta sér í blokkir að Svíþjóðardemókrötum undanskildum en hingað til hafa allir flokkar neitað að starfa með þeim. Til vinstriblokkarinnar teljast jafnaðarmenn, græningjar og Vinstriflokkurinn. Bandalag mið- og hægriflokka, gjarnan kallað Alliansen, telur Moderaterna, Miðflokkinn, Frjálslynda flokkinn og Kristilega Demókrata. Ulf Kristersson, formaður Moderaterna, er forsætisráðherraefni bandalagsins.

það verður þó að teljast nokkuð líklegt að sú stjórn sem tekur við stjórnartaumunum eftir kosningar verður minnihlutastjórn. Svíþjóðardemókratar reka fleig á milli fylkinganna og ekki hægt að mynda meirihluta annarar hvorrar blokkar án þeirra.
Ýmislegt gæti þó gerst eftir kosningar en Kristersson hefur til dæmis ekki vilja útiloka samstarf með Svíþjóðardemókrötum sem áður þótti nokkuð óhugsandi. Eins hefur Löfven sagt að hann vilji halda núverandi ríkisstjórnarsamstarfi áfram en ekki útilokað að taka við flokkum á borð við Miðflokknum. Slíkt myndi brjóta upp bandalag mið- og hægriflokkanna.