Barði mann til dauða sem áreitti dóttur hans Samúel Karl Ólason skrifar 16. ágúst 2018 10:51 Melvin Harris hefur verið ákærður af saksóknurum í Phoenix í Bandaríkjunum fyrir að berja mann til bana. Vísir/Getty
Melvin Harris hefur verið ákærður af saksóknurum í Phoenix í Bandaríkjunum fyrir að berja mann til bana. Maðurinn, sem hét Leon Armstrong, hafði reynt að brjóta sér leið inn á klósett í verslun þar sem 16 ára dóttir Harris var. Lögreglan segir að Harris hefði verið í bíl sínum fyrir utan verslunina þar sem hann var að bíða eftir dóttur sinni og tveimur vinkonum hennar. Armstrong gekk upp að honum og bað hann um og fékk peninga. Því næst fór Armstrong inn í verslunina.Dóttir Harris og vinkonur hennar komu svo út og sögðu Armstrong hafa áreitt þær. Þá fór Harris til öryggisvarðar verslunarinnar og sagði honum að grípa til aðgerða. Annars myndi hann gera það sjálfur. Öryggisvörðurinn sagði að tekið yrði á málinu. Vitni segja þó að Harris haf elt Armstrong út úr versluninni, gengið upp að honum og slegið hann í andlitið. Vitni segja einnig að Harris hafi haldið áfram að slá Armstrong þar sem hann lá í götunni og einnig sparkað í hann þar til hann varð meðvitundarlaus. Því næst keyrði Harris á brott. Armstrong var fluttur á sjúkrahús þar sem hann lést. Árásin átti sér stað þann 2. ágúst. Harris hafði verið kærður fyrir alvarlega líkamsárás en það breyttist þegar Armstrong dó og var hann kærður fyrir morð. Hann heldur því þó fram að Armstrong hafi reynt að slá sig fyrst . Harris neitar að hafa slegið Armstrong áfram eða sparkað í hann.
Bandaríkin Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Katla skelfur Innlent Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Erlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent Fleiri fréttir Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Sjá meira