Ósammála um hvort úrslitaleikurinn hafi verið sá besti í sögunni Tómas Þór Þórðarson skrifar 16. júlí 2018 12:00
Hjörvar Hafliðason, sparkspekingur Stöðvar 2 Sports, og Gunnleifur Gunnleifsson, markvörður og fyrirliði Breiðabliks, eru ósammála um gæði úrslitaleiks HM 2018 í fótbolta. Báðir eru á því að leikurinn í gær, þar sem að Frakkland vann Króatíu 4-2, hafi verið mjög góður en hann er ekki sá besti sem þeir hafa báðir séð. „Ég hef ekki séð alla úrslitaleikina. Brasilía-Svíþjóð 1958 hlýtur að hafa verið hörkuleikur. Hann endaði, 5-2,“ segir Hjörvar. „Af þeim leikjum sem ég hef séð er 86-leikurinn bestur. Hann rúllaði svo oft heima hjá mér á VHS. Það sem að sá leikur hafði var að hann var spennandi allan tímann. Í stöðunni 4-1 fyrir Frakklandi í ár var þetta búið. Leikurinn í ár er því sá næst besti sem að ég hef séð,“ segir hann. Gunnleifur er ósammála. Hann er mikill aðdáandi úrslitaleiksins frá því 1986 þar sem að Argentína vann Vestur-Þýskaland en leikurinn í gær er sá besti sem að hann hefur séð. „Menn tala um að 1970-leikurinn hafi verið frábær á milli Brasilíu og Ítalíu. Ég sá hann ekki. Fyrir mér er þetta besti úrslitaleikur sem ég hef séð,“ segir Gunnleifur Gunnleifsson. Alla umræðuna má sjá hér að ofan en þar er einnig þrasað um hvort Rússlandi hafi verið sigurvegari HM 2018 og hvernig Jóla-HM verður árið 2022.
HM 2018 í Rússlandi Mest lesið Mick Schumacher gaf sjaldgæfa innsýn inn í líf föður síns Formúla 1 Miklu fleiri bakteríur í ræktinni en á klósettsetunni Sport Liverpool hefur áhyggjur af meiðslunum hjá Trent Enski boltinn Fer til Eyja og fetar í fótspor föður síns Íslenski boltinn Í beinni: Georgía - Ísland | Næsti slagur eftir langt ferðalag Handbolti Á bara eftir að skora á Anfield og heimavelli Brentford Enski boltinn Sonur Scottie Pippen kom sér og föður sínum í sögubækurnar Sport Fram og Reykjavíkurborg semja um frekari framkvæmdir í Úlfarsárdal Íslenski boltinn Messi og félagar óvænt úr leik í fyrstu umferð en Dagur Dan fór áfram Fótbolti Gleymdi að kjósa Vinicius Junior Fótbolti Fleiri fréttir Í beinni: Man. Utd - Leicester | Síðasti leikur fyrir komu Amorims Í beinni: Tottenham - Ipswich | Nýliðarnir reyna sig gegn liðinu sem skorar mest Gleymdi að kjósa Vinicius Junior Barnið þriggja vikna þegar mamman kom inn á og varð sænskur meistari Liverpool hefur áhyggjur af meiðslunum hjá Trent Fram og Reykjavíkurborg semja um frekari framkvæmdir í Úlfarsárdal Messi og félagar óvænt úr leik í fyrstu umferð en Dagur Dan fór áfram Á bara eftir að skora á Anfield og heimavelli Brentford Fer til Eyja og fetar í fótspor föður síns „Því miður gefur sigur á Man City aðeins þrjú stig“ Juventus vann grannaslaginn „Kemur alltaf að því að eitthvað gerist í fyrsta skipti á ævinni“ Tvær breytingar á landsliðshópnum Gestirnir réðu ekki við hraðann í strákunum hans Slot Milan missteig eftir sigurinn frækna á Real Willum Þór lagði upp þegar Birmingham tapaði óvænt stigum Brighton sá til þess að Man City tapaði fjórða leiknum í röð Hermann Hreiðars tekur við HK Bayern jók forystuna á toppnum á meðan Dortmund og Leverkusen töpuðu stigum Liðsfélaginn náði þriggja marka forskoti á Emilíu Kiær Birkir Bjarna kom aftur inn á og skoraði Vinicius Junior með þrennu í stórsigri Real Madrid Sigdís Eva opnaði markareikninginn og Hlín skoraði tvö Varsjáin tók mark af Jóni Degi Sædís í stuði með meisturunum Sveindís Jane og félagar upp í toppsætið „Ég held að hann sé betri útgáfa af Haaland“ Guardiola skilur ekkert í valinu á Grealish Atkvæði Íslands var með efstu menn í réttri röð í Ballon d'Or kosningunni Ancelotti um vandræði Real Madrid: Ég er búinn að finna lausnina Sjá meira