Meðlimir sértrúarsafnaðar teknir af lífi Stefán Ó. Jónsson skrifar 6. júlí 2018 06:23 Shoko Asahara, leiðtogi sértrúarsafnaðarins Aum Shinrikyo Vísir/AFP
Sjö meðlimir japanska sértrúarsafnaðarins Aum Shinrikyo hafa verið teknir af lífi. Þeirra á meðal var leiðtogi safnaðarins, Shoko Ashara. Söfnuðurinn stóð á bakvið efnavopnaárás í neðanjarðarlestarkerfi Tókíóborgar árið 1995. Um er að ræða mannskæðasta hryðjuverk í sögu japönsku þjóðarinnar, en alls létust 13 manns og þúsundir særðust. Sex meðlimir safnaðarins eru á lífi og allir á bakvið lás og slá. Í yfirlýsingu japanska dómsmálaráðuneytisns kemur fram að aftökurnar hafi verið framkvæmdar í morgun. Beðið hafði verið með þær uns niðurstöður úr áfrýjunum einstaklinganna lægju fyrir, en þeim var öllum hafnað í janúar síðastliðnum. Frá árinu 2010 hafa átta manns að meðaltali verið teknir af lífi í Japan á ári hverju, en þær eru framkvæmdar með hengingu. Shoko Ashara og félögum var einnig gefið að sök að hafa staðið á bakvið fjölda annarra morða. Til að mynda er söfnuðurinn talinn hafa framið aðra efnavopnaárás árið 1994, sem dró 8 manns til dauða og særði um 800. Á vef breska ríkisútvarpsins er hópurinn sagður hafa komið pokum fullum af taugaefninu saríngasi fyrir í neðanjarðarlestum. Eftir nokkrar mínútur hafi pokarnir byrjað að leka og gasið fyllt klefa lestanna. Farþegarnir hafi byrjað að finna til særinda í augum og öndunarfærum áður en þeir féllu til jarðar. Flestir köstuðu upp og aðrir köfnuðu, blinduðust eða lömuðust. Sem fyrr segir létu 13 manns lífið í árásinni sem Aum Shinrikyo framkvæmdi í Tókíó í mars árið 1995. Söfnuðurinn leit dagsins ljós á níunda áratugnum og reiddi sig í fyrstu á kenningar úr hindúisma og búddisma. Eftir því sem árin liðu innleiddi hann fleiri þætti úr heimsendaspám kristninnar í kennisetningar sínar. Leiðtogi safnaðarins, Shoko Ashara, leit á sig sem Jesú Krist endurfæddan og þann fyrst sem telja mætti sem „uppljómaðan“ frá því að Búdda var og hét. Þegar mest lét töldu meðlimir safnaðarins nokkra tugi þúsunda. Hann hvarf hins vegar af sjónarsviðinu eftir árásina árið 1995 og söfnuðurinn skipti að endingu um nafn.
Mest lesið Gefst upp og flytur eftir sjö ára mótmæli Innlent Mikill meirihluti féll fyrir íslenskri gervigreindarmynd Innlent Noem rekin Erlent Sjá sér með engu móti fært að ná björgunarflugi Innlent Hola í vegi tók fjóra bíla úr umferð á vanræktum vegkafla Innlent Blöskrar viðbrögðin eftir tilnefningu fyrir mistök Innlent Þór styrkti Kvennaathvarfið og fær að halda pútternum Innlent Jón Baldvin segir söguskýringu Dags af og frá: Samdi við Davíð um EES Innlent Komin með ógeð af því að hlusta á „hverja silkihúfuna á fætur annarri“ Innlent „Þessi umræða er rosalega niðurlægjandi“ Innlent Fleiri fréttir Handleggsbrotinn eftir átök við öldungardeildarþingmann Noem rekin Leita til Úkraínumanna vegna íranskra sjálfsprengidróna Telja sjávarhæð verulega vanmetna sem gæti ógnað milljónum manna Játar að hafa haldið við aðstoðarkonu sem kveikti í sér Bæta við einu geimskoti og stefna á tunglið 2028 Íhugar að reka Noem eftir deilur við þingmenn Reyna að vernda líf áhafnar annars íransks skips Ráðast á bandarískt olíuflutningaskip en sverja af sér árás á Tyrkland Bondi neydd til að svara spurningum um Epstein-málið Skæðadrífa frá Íran og Ísraelar héldu árásum á Líbanon áfram Taka beri orðum bandarískra stjórnvalda um stöðuna í Íran með fyrirvara Sökktu skipi með tundurskeyti í fyrsta sinn frá seinna stríði Gæti Ísland dregist inn í átökin?: Eldflaug frá Íran skotin niður í lofthelgi Tyrklands Gefur lítið fyrir hótanir Trumps Írönum og Bandaríkjamönnum ber ekki saman um stöðuna á Hormuz-sundi Danskur öfgamaður ákærður fyrir nauðgunarlýsingar Clinton stöðvaði yfirheyrsluna og gekk út Græningjar teknir fram úr Verkamanna- og Íhaldsflokki Vaktin: Átökin breiðast enn út Frakkar fjölga kjarnavopnum Ísrael gerir árásir á Tehran og Beirút og Íranir svara fyrir sig Melania fer með formennsku á fundi öryggisráðsins Fönguðu kolefni með sömu aðferð og átti að nota í Hvalfirði Eltihrellir Marin ekki talinn sakhæfur Vaktin: Sprengjum rignir enn Hundruð þúsunda farþega strandaglópar vegna stríðs í Íran Rannsaka skotárás í Texas sem mögulegt hryðjuverk Íranir svara fyrir sig og Ísraelar ráðast gegn Hezbollah í Líbanon Hóta að grípa til hernaðaraðgerða gegn Íran Sjá meira