Smáaurar fengust upp í risakröfur á félag Lýsingar Þorsteinn Friðrik Halldórsson skrifar 7. júlí 2018 07:15 Lykill hét áður Lýsing. Pera er dótturfélag Lykils. Fréttablaðið/Stefán
Skiptum á þrotabúi Peru ehf. lauk í júní og var niðurstaðan sú að 1,1 milljón fékkst greidd upp í kröfur á hendur félaginu sem námu tæplega 19,7 milljörðum króna. Þetta kemur fram í auglýsingu í Lögbirtingablaðinu. Pera er dótturfélag Lykils fjármögnunar, sem áður hét Lýsing, og var stofnað árið 2007. Félagið hélt utan um tryggingar vegna lánveitinga Deutsche Bank til Lýsingarsamstæðunnar upp á tugi milljarða króna. Kröfuréttindin sem voru á undirliggjandi samningum hjá Lýsingu voru þannig framseld til Peru. Lánin voru endurfjármögnuð árið 2013 og dró þá verulega úr starfsemi félagsins. Í ársreikningi Lykils fyrir árið 2017 segir að í desember hafi stjórn Peru sent beiðni til dómstóla þess efnis að félagið yrði tekið til slitameðferðar með hliðsjón af ógjaldfærni félagsins. Enn fremur segir að yfirfæranlegt tap Lykils, þá Lýsingar, á árunum 2010, 2011 og 2012, sem nam tæplega 16,9 milljörðum í heildina, sé komið frá Peru og falli niður við gjaldþrot félagsins. Hins vegar myndist skattaleg gjaldfærsla vegna tapaðrar kröfur Lykils á hendur Peru að fjárhæð 18,5 milljarðar króna.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Hafna ásökunum um hönnunarstuld Viðskipti innlent Fyrrverandi forstjóri óttast að félagið verði keypt og lagt niður Viðskipti innlent Birgitta Líf ráðin framkvæmdastjóri Viðskipti innlent Eldrauð Kauphöll Viðskipti innlent Iðnaðurinn forherðist í andstöðu gegn ESB Viðskipti innlent Opna Lindex þar sem Útilíf var Viðskipti innlent Verða af hundruðum þúsunda á ári þegar akstursdagbókin gleymist Samstarf Taka skemmtiferðaskip í Vör Viðskipti innlent Hagnaður tveimur milljörðum meiri en árið áður Viðskipti innlent Netflix kaupir gervigreindarfyrirtæki Affleck Viðskipti erlent Fleiri fréttir Fyrrverandi forstjóri óttast að félagið verði keypt og lagt niður Iðnaðurinn forherðist í andstöðu gegn ESB Opna Lindex þar sem Útilíf var Hafna ásökunum um hönnunarstuld Losun Landsvirkjunar jókst vegna virkjanaframkvæmda Birgitta Líf ráðin framkvæmdastjóri Eldrauð Kauphöll Taka skemmtiferðaskip í Vör Hagnaður tveimur milljörðum meiri en árið áður Pipar/TBWA með flesta Lúðra Skipti ekki máli hvaðan olían er Pálmi til liðs við Sagafilm Máttu ráðast í húsleit hjá Skel og Lyfjum og heilsu Þorsteinn nýr formaður stjórnar Samtaka iðnaðarins Bein útsending: Iðnþing 2026 Birgitta Líf gefur ekkert upp um næstu skref Hildur fer frá Hörpu til KPMG Ríkarður ráðinn aðstoðarforstjóri Hrafn frá Össuri til Gosfélagsins Útflutningstekjur tækni- og hugverkaiðnaðar hærri en í sjávarútvegi í fyrsta sinn Stríðið geti ýtt undir stöðuna í hagkerfinu Bein útsending: Orkueyjan og alþjóðleg samkeppni Hagkerfið allt í hættu 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Átökin geri baráttuna við verðbólguna enn erfiðari Mun leiða Fab Lab Reykjavík Jón Örn genginn í eigendahópinn Óvíst að fullyrðing um kjaragliðnun standist skoðun Halla ráðin markaðsstjóri BM Vallár Andri Þór hættir sem forstjóri Ölgerðarinnar Sjá meira