„Innipúkinn er þannig hátíð að það vilja allir spila á henni og spyrja engra spurninga – þetta er orðin ein elsta tónlistarhátíð landsins og skipulagið á hátíðinni er eiginlega sjálfseignarstofnun þannig að það á enginn Innipúkann og öllum hagnaði er skipt jafnt á milli allra bandanna sem þar koma fram og þá skiptir engu hvort þú ert Mugison eða GDRN. Miðaverði er stillt í hóf og við erum með frábæra styrktaraðila. Svo eru þessir tónleikastaðir tveir sem mér að minnsta kosti finnst skipta mestu máli í miðbænum – Húrra og Gaukur á Stöng sem hjálpa okkur mjög mikið. Vegna allra þessara atriða og hvernig allir koma saman þá myndast þetta skemmtilega andrúmsloft sem gerir okkur tónleikahöldurum mjög auðvelt fyrir, “ segir Ásgeir Guðmundsson, einn skipuleggjenda Innipúkans.
Ásgeir segir hátíðina verða með svipuðu sniði og áður – enda segir hann Innipúkann ekki hafa áhuga á því að breyta því sem þarf ekki að breyta. Hátíðin fer fram á Húrra og Gauki á Stöng og stendur í þrjá daga – föstudag, laugardag og sunnudag og grasrótinni verður gefið sitt pláss.

„Við erum búin að sækja um að loka aftur þessari götu. Það hefur auðvitað myndast góð og þversagnakennd stemming þar – útisvæði á Innipúkanum. En við lendum hins vegar núna í því að fyrstu viðbrögð frá umhverfis- og skipulagssviði, sem sér um að deila út þessum afnotaleyfum, eru bara „nei.“ Þetta er smá svona „computer says no“ vegna þessara framkvæmda sem eru þarna við enda Hafnarstrætisins við Lækjargötu. Vegna þess að það er einhver lokun þar þá þurfi að beina umferð um þessa götu, sem ég er ekki sammála að þurfi. Þetta er frekar vélrænt svar sem ég er náttúrulega búinn að andmæla og gerði fyrir löngu, borgin er með þetta í skoðun, við erum bjartsýn á að þetta komi í gegn.“
Ásgeir segist vonast til þess að þessu svari verði snúið við enda séu að hans mati sterk rök fyrir því að torgið fái að standa akkúrat þessa helgi. „Við vonumst nú bara til þess að þetta séu fyrstu viðbrögð, sérstaklega í ljósi mikilvægis þess að vinna með okkur og öðrum sem vilja standa að því að gæða borgina lífi þessa helgi þar sem er kannski ekki mikið að frétta í þessari borg – það eru svo margir sem af einhverjum ástæðum kjósa að fara út á land á sama tíma og allir aðrir gera það. Innipúkatorgið hefur verið ansi mikilvægur partur af þessari stemmingu.“ Miðasala hefst í dag klukkan 10 á tix.is.
Listamenn sem eru kynntir til sögunnar í dag:
JóiPé og KróliGDRN
Bjartar sveiflur
HATARI
Girl Power
Svala Björgvinsdóttir
Logi Pedro
Une misère
Mugison
Sykur
BRÍET
Yung Nigo Drippin, RARI BOYS og Geisha Cartel (í sameiningu)
Prins Póló