Selma Sól: Mjög gaman að fá traustið og tækifæri Ástrós Ýr Eggertsdóttir á Laugardalsvelli skrifar 11. júní 2018 21:00 Selma Sól fagnar marki með Sif og Fanndísi. vísir/andri marinó
Selma Sól Magnúsdóttir kom inn í byrjunarlið Íslands í dag í fjarveru fyrirliðans Söru Bjarkar Gunnarsdóttur í leiknum gegn Slóveníu í undankeppni HM 2019. Freyr Alexandersson, landsliðsþjálfari, sýndi henni mikið traust en Selma átti aðeins 5 landsleiki að baki fyrir leikinn. „Já, ég fékk traustið í dag og það er bara mjög gaman að fá traustið og tækifæri,“ sagði nýgræðingurinn eftir leikinn í kvöld. Freyr hafði orð á því fyrir leikinn að Selma hefði alla burði til þess að geta orðið framtíðarfyrirliði í landsliðinu. Selma þakkaði traustið í dag og spilaði mjög vel inni á miðjunni. Hvernig leið henni inni á vellinum? „Mjög vel. Stelpurnar hjálpuðu mér mjög mikið og það var góður talandi í liðinu og þær hjálpuðu mér að koma mér í gang og svona.“ Miðvörðurinn Glódís Perla Viggósdóttir skoraði bæði mörk leiksins sem fór 2-0 fyrir Íslandi og kom seinna markið upp úr hornspyrnu Selmu Sólar. Ísland er á toppi riðilsins eftir sigurinn með einu stigi meira en Þjóðverjar. Liðin mætast á Laugardalsvelli í september. „Það er mikill spenningur fyrir næsta verkefni. Það þurfti mikla þolinmæði í dag og við vissum það, þetta tók smá tíma að skora fyrsta markið en það gekk upp í dag og við erum mjög sáttar,“ sagði Selma Sól Magnúsdóttir.
HM 2019 í Frakklandi Mest lesið Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Íslenski boltinn Hitti nýjustu stjörnu íslenska körfuboltans í skólanum Körfubolti „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Íslenski boltinn Manchester United - Bournemouth | Heldur martröðin áfram? Enski boltinn Leik lokið: Víkingur-Fram 2-2 | Víkingar rétt sluppu við súra sigurhátíð Íslenski boltinn Bruno settur á bekkinn Enski boltinn Vondur dagur varð enn verri fyrir fyrirliða Man. United Enski boltinn Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór Íslenski boltinn Liverpool - Brighton | Heldur óvænt gengi Brighton áfram? Enski boltinn Uppgjörið: KA-ÍBV 5-1 | KA fallið þrátt fyrir stórsigur Íslenski boltinn Fleiri fréttir Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Ásdís Karen með tvennu í góðum sigri Liverpool - Brighton | Heldur óvænt gengi Brighton áfram? Manchester United - Bournemouth | Heldur martröðin áfram? Bruno settur á bekkinn Sjáðu rauða spjald Palmer og Arsenal jafna Man. City Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Siggi Raggi getur gert NSÍ að Færeyjameisturum í dag Infantino segist njóta gríðarlegs stuðnings Vafi um réttan markafjölda Ronaldo eftir umdeilt mark „Við munum reyna að vernda hann fyrir sjálfum sér“ Strákarnir hans Freys klífa upp töfluna Markahæsta umferð sögunnar De Zerbi kátur eftir leik: „Nú er þetta fullmótað lið“ Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Gylfi valinn besti leikmaður ársins „Óvíst hvar Stefan Ljubicic mun spila“ „Engin krafa frá stjórn um að ná sæti í Evrópukeppni“ Tottenham vann tíu Chelsea-menn á Brúnni Leik lokið: Víkingur-Fram 2-2 | Víkingar rétt sluppu við súra sigurhátíð Óskar Hrafn: „Krefst þess að menn séu ekki saddir“ Lárus Orri hættur með ÍA og Heimir sagður á leiðinni Uppgjörið: KA-ÍBV 5-1 | KA fallið þrátt fyrir stórsigur Hólmar Örn Eyjólfsson: „Horfi til baka og er bara stoltur“ Jóhannes Karl sér bjarta tíma fram undan: „Það var eitthvað að mótast, kjarni í liðinu“ Siggi Höskulds eftir dramatíska björgun Þórs: „Fótbolti er miklu meira en eitthvað xG og kjaftæði“ Nýbúin að vera valin best á Íslandi og skoraði tvö mörk í Svíþjóð Lagði upp jöfnunarmark á sama tíma og hann missti markametið Andri Lucas skoraði tvö mörk í sigri á Hollywood-liðinu Sjá meira
Siggi Höskulds eftir dramatíska björgun Þórs: „Fótbolti er miklu meira en eitthvað xG og kjaftæði“