Sögulegur sigur Japans á Suður-Ameríkuþjóð Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 19. júní 2018 14:00 Yuya Osako fagnar sigurmarki sínu. Vísir/Getty Japanir unnu 2-1 sigur á tíu Kólumbíumönnum í fyrsta leik þjóðanna á HM í fótbolta í Rússlandi í dag. Yuya Osako skoraði sigurmarkið sautján mínútum fyrir leikslok. Þetta er í fyrsta sinn í sögunni sem Asíuþjóð vinnur Suður-Ameríkuþjóð á heimsmeistaramóti og fyrsti sigur Japans á Kólumbíu í landsleik. Þetta eru ein óvæntustu úrslitin á HM í Rússlandi en atvik í byrjun leiks hafði mikil áhrif á þróun mála í þessum leik. Kólumbíumenn urðu nefnlega fyrir miklu áfalli í upphafi leiks þegar Carlos Sánchez fékk rautt spjald á 3. mínútu fyrir að verja skot með hendi. Japanir fengu að auki vítaspyrnu sem Shinji Kagawa nýtti og kom Japan í 1-0. Kólumbíumenn voru því manni færri í 85 mínútur og það er langt frá því að verja besta leiðin til að byrja heimsmeistaramót. Það var samt ekki að sjá að Kólumbíumenn voru manni færri í fyrri hálfleiknum því þeir voru mun hættulegri í sínum aðgerðum en Japanir. Kólumbíumenn fengu nokkur hálffæri og svo aukaspyrnu sem Juan Fernando Quintero skoraði úr rétt fyrir hálfleik. Quintero var klókur, setti boltann undir varnarvegginn sem hoppaði allur upp. Japanir nýttu hálfleikinn hinsvegar vel, endurskipulögðu sinn leik og tóku öll völd í seinni hálfleiknum. Japanska liðið var búið að eiga nokkur ágæt færi þegar Yuya Osako skallaði laglega inn hornspyrnu frá Keisuke Honda. Markið kom á 73. mínútu og reyndist vera sigurmarkið. Kólumbíumenn reyndu að ná jöfnunarmarki á lokamínútunum og sendu meðal annars hinn meidda James Rodríguez inn á völlinn í lokin en það dugði ekki til. Japanir héldu út og fögnuðu gríðatlega sögulegum sigur sem opnar heldur betur þennan H-riðil sem gæti orðið einn sá mest spennandi í keppninni.Japan defeats Colombia 2-1. This is the 1st ever win by an Asian Football Confederation (AFC) team over a South American (CONMEBOL) opponent at the #WorldCup (18th meeting). pic.twitter.com/YGWnjsN5JH — ESPN Stats & Info (@ESPNStatsInfo) June 19, 2018 HM 2018 í Rússlandi
Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti
Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti