Valsmenn fá tvo leikmenn úr Íslandsmeistaraliði ÍBV Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 1. júní 2018 13:06 Anton Rúnarsson, Agnar Smári Jónsson og Róbert Aron Hostert. Vísir/Vilhelm
Valsmenn eru heldur betur búnir að styrkja liðið sitt fyrir átökin í Olís deild karla í handbolta næsta vetur en Hlíðarendaliðið missti báða stóru titlana til Eyja í vetur. Valur tilkynnti um þrjá nýja leikmenn á blaðamannafundi í Valsheimilinu í dag. Tveir þeirra koma úr Íslandsmeistaraliði ÍBV og sá þriðji er markvörður á leiðinni heim úr atvinnumennsku Þetta eru þeir Agnar Smári Jónsson frá ÍBV, Róbert Aron Hostert frá ÍBV og Daníel Freyr Andrésson frá Ricoh í Svíþjóð. Þá var tilkynnt um framlengingu á samningi hjá Antoni Rúnarssyni. Agnar Smári spilar sem örvhent skytta, Róbert Aron getur bæði spilað sem skytta og leikstjórnandi og Daníel Freyr er markvörður. Agnar Smári og Róbert Aron urðu báðir þrefaldir meistarar með Eyjaliðinu á nýloknu tímabili og hjálpuðu ÍBV-liðinu líka að verða Íslandsmeistari vorið 2014. Róbert Aron skoraði 38 mörk í 9 leikjum í úrslitakeppninni í ár (4,2 mörk í leik) en 85 mörk í 20 leikjum í deildarkeppninni (4,3 mörk í leik). Róbert Aron varð Íslandsmeistari í þriðja sinn í vor en hann vann titilinn einnig með Fram árið 2013. Agnar Smári skoraði 28 mörk í 8 leikjum í úrslitakeppninni í ár (3,5 mörk í leik) en 102 mörk í 22 leikjum í deildarkeppninni (4,6 mörk í leik). Agnar Smári var ennfremur með 12 mörk í bikarúrslitaleiknum. Daníel Freyr Andrésson var markvörður FH-liðsins þegar liðið varð Íslandsmeistari árið 2011. Hann hefur spilað undanfarin fjögur ár í Danmörku (með SönderjyksE) og í Svíþjóð (með Ricoh).
Olís-deild karla Mest lesið Fær einn lokaséns eftir áfall á Spáni: „Ég var bara mjög hrædd“ Sport „Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Sport Táningur sakfelldur fyrir morð á frjálsíþróttamóti Sport Söguleg endurkoma Knicks Körfubolti „Við erum félagar, við Messi“ Fótbolti Ronaldo fór illa með færin í kvöld Fótbolti „Slakiði á“ Fótbolti Edwards rekinn frá Úlfunum Fótbolti Nýi Barcelona-maðurinn í góðum gír í sigri Englendinga Fótbolti LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Körfubolti Fleiri fréttir Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Sjá meira