Ákærð fyrir áralangt ofbeldi gegn börnunum Stefán Ó. Jónsson skrifar 16. maí 2018 06:57 Jonathan Allen og Ina Rogers voru handtekin í mars. Guardian
Foreldrar í Kaliforníu hafa verið ákærðir fyrir barnaníð og pyntingar eftir að 10 börn fundust við „hræðilegan“ aðbúnað á heimili þeirra. Jonathan Allen, 29 ára gamall faðir barnanna, neitar að hafa brotið gegn börnum sínum sem eru á aldrinum 4 mánaða til 12 ára og bjuggu ásamt foreldrum sínum í borginni Fairfield, norðan San Fransisco. Móðirin, Ina Rogers, hefur að sama skapi neitað öllum ásökunum. Foreldrarnir sæta níu ákærum fyrir barnaníð en faðirinn er einnig ákærður í sjö liðum fyrir pyntingar. Börnunum var bjargað af heimilinu í mars síðastliðnum. Að sögn þarlendra lögregluyfirvalda voru börnin illa útleikin. Til að mynda sáust á líkama þeirra fjöldi bruna- og stungusára og þá virðast þau einnig hafa verið skotin með loftbyssum. Ljóst væri að sögn saksóknara að börnin hafi verið notuð til að fullnægja „sadískum“ löngunum foreldranna.Samantekt Guardian um málið má sjá hér að neðanÞá á heimilið að hafa verið fullt af úldnum mat og hvers kyns úrgangi. Börnin eru sögð hafa greint frá því í viðtölum við félagsráðgjafa og sálfræðinga að ofbeldið hafi staðið yfir árum saman. Barnaverndaryfirvöld í Kaliforníu rannsaka nú hvort að þau hafi getað brugðist fyrr við í máli barnanna. Þau hafi til að mynda farið inn á heimili fjölskyldunnar fyrir 3 árum síðan. Ekkert hafi hins vegar verið gert í kjölfarið og börnunum því aftur komið í umsjá foreldra sinna - sem héldu ofbeldinu áfram. Amma barnanna, móðir Inu Rogers, segir að hana hafi alltaf grunað að verið væri að misnota börnin. Á vef Guardian er haft eftir ömmunni að henni hafi alltaf þótt tengdasonur sinn vera skrímsli. „Hann átti það til að slá börnin utanundir og setja svo límband yfir munninn á þeim svo þau myndu hætta að gráta.
Bandaríkin Mest lesið Kveikt í púðurtunnu í Mið-Austurlöndum Erlent Bjóða upp á tjaldsvæði inni Innlent Saka Þorgerði um brot á þingsköpum Innlent „Ég var ekki að deyja, en ég þurfti hjálp“ Innlent Kostar allt að 210 þúsund krónum að vera í golfklúbbi Innlent Grimmdarlegu ofbeldi lýst í ákærunni Innlent Eldhaf í Glasgow Erlent Bíll hafnaði í Kópavogstjörn Innlent Niðurrif ónýtra húsa í Grindavík hafið Innlent Að kljúfa þjóðina með tilfinningaþrunginni spurningu Innlent Fleiri fréttir Rannsaka heimagerða sprengju sem hryðjuverk Felldu sex í árás á enn einn bátinn Eldhaf í Glasgow Kveikt í púðurtunnu í Mið-Austurlöndum Segir sig og Netanyahu munu ákveða hvenær þeir hætta Sonur Khamenei nýr leiðtogi Írans Ræddust við í síma í kjölfar ummæla Trump um Breta Segir af sér vegna samnings Pentagon við gervigreindarfyrirtæki Til skoðunar hvort um hryðjuverk sé að ræða Sprenging við bandaríska sendiráðið í Osló Hóta öllum mögulegum arftökum Khamenei „Þess í stað eru þeir ræflar svæðisins“ Leiðtogar kalla eftir breytingum á erfðaröðinni Soham-morðinginn látinn Segir kröfu Bandaríkjanna um skilyrðislausa uppgjöf Íran draum Segir Kúbu brátt munu falla Rússar hjálpa Írönum að finna skotmörk Segir ekkert annað en uppgjöf Írana koma til greina Birtu viðtölin um Trump sem vantaði í Epstein-skjölin Hættir við framboð sitt í kjölfar játningar um framhjáhald Telja líklegt að þeir hafi drepið írönsku skólastúlkurnar Skurðlæknir í Lundúnum fjarlægði blöðruhálskirtil á Gíbraltar Grænmetis„borgarar“ í lagi en ekki grænmetis„beikon“ Bandaríkjamenn heimila Indverjum að kaupa olíu frá Rússlandi Bandaríkin og Ísrael boða harðari árásir á næstu dögum Handleggsbrotinn eftir átök við þingmann Noem rekin Leita til Úkraínumanna vegna íranskra sjálfsprengidróna Telja sjávarhæð verulega vanmetna sem gæti ógnað milljónum manna Játar að hafa haldið við aðstoðarkonu sem kveikti í sér Sjá meira