Fyrsti rafmagnssendibíll landsins afhentur Finnur Thorlacius skrifar 17. maí 2018 07:00 Veitur ohf. hafa fengið til notkunar Iveco Daily Blue Power Electric.
Veitur ohf. tóku á móti fyrsta rafmagnssendibíl landsins fyrir skömmu en hann er af gerðinni Iveco Daily Blue Power Electric. Veitur ohf. eru dótturfélag Orkuveitu Reykjavíkur og hafa verið í fararbroddi íslenskra fyrirtækja í notkun umhverfisvænna atvinnubíla. Við sama tækifæri sýndu Kraftvélar almenningi þennan sendibíl ársins 2018, en þar fer fyrsti 100% rafmagnsbíllinn á Íslandi í flokki stærri sendibíla. Iveco Daily var kosinn sendibíll ársins 2015 þegar ný kynslóð hans var kynnt. Núna þremur árum síðar kynnti Iveco umhverfisvæna útfærslu bílsins sem nefnd hefur verið Blue Power og hlaut hann þá aftur þessi eftirsóttu verðlaun. Verðlaunin veitir dómnefnd bílablaðamanna frá 25 löndum.Með 200 km raundrægi Daily Blue Power Electric er með allt að 200 kílómetra raundrægi með tveggja tíma hraðhleðslu og 100% endurvinnanlegum rafhlöðum. Iveco Daily Blue Power má einnig fá í metanútfærslu og því gefst fyrirtækjum nú kostur á umhverfisvænni atvinnubílum sem standast kröfur um minni mengun og því eru engin takmörk á þéttbýlisnotkun þeirra. Hægt er að fá bílinn með 9 til 19,6 rúmmetra flutningsrými. Einnig má fá bílinn með vörukassa og í pallbílsútfærslu.
Birtist í Fréttablaðinu Bílar Tengdar fréttir Hringvegurinn allur orðinn fær rafbílum Með nýrri hleðslustöð á Mývatni eru ekki meira en 100 kílómetrar á milli hleðslustöðva á hringveginum. Flestir rafbílar geta ekið hringveginn án teljandi vandræða. Umhverfisráðherra segir þetta mikilvægt skref í átt að orkuskiptum 26. mars 2018 08:00 Mest lesið „Hann er bara dáinn“: Telur að mistök hafi verið gerð hjá Neyðarlínunni Innlent Skúli Tómas ákærður fyrir manndráp en fimm mál felld niður Innlent „Þá er ég hræddur um að þetta kerfi falli um sjálft sig“ Innlent Í meðferð eftir fjárdrátt hjá Viðreisn Innlent Árásarmenn teknir af lífi innan 90 daga Erlent Andspyrna á Íslandi sé hvatning fyrir þau sem heima eru Innlent Ósætti vegna dymbilvikulokana í leikskólum Garðabæjar Innlent Maðurinn er fundinn Innlent Skoðar að enda stríðið án þess að opna Hormússund Erlent Hellisheiði opin en Þrengsli enn lokuð Innlent
Hringvegurinn allur orðinn fær rafbílum Með nýrri hleðslustöð á Mývatni eru ekki meira en 100 kílómetrar á milli hleðslustöðva á hringveginum. Flestir rafbílar geta ekið hringveginn án teljandi vandræða. Umhverfisráðherra segir þetta mikilvægt skref í átt að orkuskiptum 26. mars 2018 08:00