Lét lífið eftir rafrettusprengingu Stefán Ó. Jónsson skrifar 17. maí 2018 06:17 Tallmadge D'Elia er talinn vera fyrsti maðurinn sem lætur lífið í rafrettusprengingu. BBC
Bandarískur karlmaður lést eftir að rafsígaretta sem hann reykti sprakk framan í hann. Í skýrslu réttarmeinafræðinga sem vitnað er til á vef breska ríkisútvarpsins kemur meðal annars fram að við sprenginguna hafi brot úr sígarettunni festst í höfuðkúpu mannsins. Þá er hann jafnframt sagður hafa hlotið brunasár á 80 prósentum líkamans. Maðurinn, hinn 38 ára gamli Tallmadge D'Elia, fannst látinn á heimili sínu þann 5. maí síðastliðinn. Slökkviliðsmenn höfðu verið sendir á vettvang eftir að tilkynning barst um eld sem kviknaði hafði í svefnherbergi mannsins. Talið er að D'Elia sé fyrsti reykingamaðurinn vestanhafs sem lætur lífið eftir rafrettusprengingu. Rafrettan var framleidd af fyrirtækinu Smok-E Mountain en óljóst er á þessari stundu hvort að fyrirtækið kunni að vera skaðabótaskylt vegna málsins, sem rannsakað er sem slys af þarlendum lögregluyfirvöldum. Þetta er þó ekki í fyrsta sinn sem rafrettur springa í höndum reykingamanna. Frá árinu 2009 til 2016 er talið að um 195 rafrettur hafi sprungið í Bandaríkjunum, 133 reykingamenn eru sagðir hafa slasast vegna þessa og þar af 38 alvarlega. Til að mynda sprakk rafretta framan í mann í Colorado árið 2015. Hann er sagður hafa hálsbrotnað og tennur mannsins eiga að hafa splundrast.
Bandaríkin Mest lesið Kveikt í púðurtunnu í Mið-Austurlöndum Erlent Bjóða upp á tjaldsvæði inni Innlent „Ég var ekki að deyja, en ég þurfti hjálp“ Innlent Grimmdarlegu ofbeldi lýst í ákærunni Innlent Eldhaf í Glasgow Erlent Kostar allt að 210 þúsund krónum að vera í golfklúbbi Innlent Saka Þorgerði um brot á þingsköpum Innlent Bíll hafnaði í Kópavogstjörn Innlent Landbúnaðarstefna ESB henti íslenskum landbúnaði illa Innlent Niðurrif ónýtra húsa í Grindavík hafið Innlent Fleiri fréttir Rannsaka heimagerða sprengju sem hryðjuverk Felldu sex í árás á enn einn bátinn Eldhaf í Glasgow Kveikt í púðurtunnu í Mið-Austurlöndum Segir sig og Netanyahu munu ákveða hvenær þeir hætta Sonur Khamenei nýr leiðtogi Írans Ræddust við í síma í kjölfar ummæla Trump um Breta Segir af sér vegna samnings Pentagon við gervigreindarfyrirtæki Til skoðunar hvort um hryðjuverk sé að ræða Sprenging við bandaríska sendiráðið í Osló Hóta öllum mögulegum arftökum Khamenei „Þess í stað eru þeir ræflar svæðisins“ Leiðtogar kalla eftir breytingum á erfðaröðinni Soham-morðinginn látinn Segir kröfu Bandaríkjanna um skilyrðislausa uppgjöf Íran draum Segir Kúbu brátt munu falla Rússar hjálpa Írönum að finna skotmörk Segir ekkert annað en uppgjöf Írana koma til greina Birtu viðtölin um Trump sem vantaði í Epstein-skjölin Hættir við framboð sitt í kjölfar játningar um framhjáhald Telja líklegt að þeir hafi drepið írönsku skólastúlkurnar Skurðlæknir í Lundúnum fjarlægði blöðruhálskirtil á Gíbraltar Grænmetis„borgarar“ í lagi en ekki grænmetis„beikon“ Bandaríkjamenn heimila Indverjum að kaupa olíu frá Rússlandi Bandaríkin og Ísrael boða harðari árásir á næstu dögum Handleggsbrotinn eftir átök við þingmann Noem rekin Leita til Úkraínumanna vegna íranskra sjálfsprengidróna Telja sjávarhæð verulega vanmetna sem gæti ógnað milljónum manna Játar að hafa haldið við aðstoðarkonu sem kveikti í sér Sjá meira