Þemað er umburðarlyndi Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 4. apríl 2018 08:00 Á námskeiðinu segir Dóra að farið verði yfir tækni og aðferðir við sketsakrif, hlegið og lært Vísir/VIlhelm
Opnunarmynd barnakvikmyndahátíðarinnar í Bíói Paradís er Doktor Proktor og tímabaðkarið sem er ævintýramynd fyrir börn á öllum aldri, byggð á vinsælum barnabókum norska rithöfundarins Jo Nesbø. Hún hefur verið talsett á íslensku og fer síðan í almennar sýningar. Hátíðin hefst á morgun klukkan 17 og þar verða bæði forsetinn og Vísinda-Villi mættir. Hún stendur út vikuna og hver kvikmyndasýningin rekur aðra. Þemað í ár er umburðarlyndi og verndari hátíðarinnar er Vigdís Finnbogadóttir. Einn viðburðanna er ókeypis námskeið fyrir 13 til 15 ára sem nefnist Kanntu skets að skrifa og er í umsjá Dóru Jóhannsdóttur leikkonu. Þó að Dóra sé alltaf að halda sketsanámskeið í framhaldsskólum, fyrirtækjum og víðar þá kveðst hún aldrei hafa verið með þessum aldurshópi áður. Því sé hún mjög spennt. „Við munum skoða sketsa héðan og þaðan, greina þá og fara yfir undirstöðuatriði við sketsaskrif. Skyldi vera einhver gullin regla sem allir sketsar byggja á?„Ja, það er svona gullinsnið. Þetta er fag með vissri tækni og aðferðum sem við förum yfir og hlæjum og lærum á meðan. Það eru alls konar atriði sem við pælum í.“ Dóra segir flesta einstaklinga fyndna og húmoríska inn við beinið, svo það sé yfirleitt ekki vandamálið. Það sem skipti mestu máli í sketsaskrifum sé að skrifa sem mest, helst helmingi meira en það sem notað er, til að geta valið úr. Láta svo vini sína og vandamenn lesa yfir og endurskrifa sem oftast. „Fyrsta uppkast þarf ekki að vera neitt fyndið.“ En verða þættirnir leiknir í framhaldinu? „Af því að við hittumst bara í þetta eina skipti getum við kannski ekki búið til heilu sketsana, heldur bara fengið hugmyndir að þeim,“ svarar Dóra og segir margar aðferðir til þess. Hugmyndirnar geti komið úr eigin lífi og umhverfi, úr steríótýpum, karakterum úr bíómyndum eða þáttum sem við höfum séð. „Það er hægt að fá innblástur alls staðar og við förum yfir nokkrar aðferðir til þess.“„Ja, það er svona gullinsnið. Þetta er fag með vissri tækni og aðferðum sem við förum yfir og hlæjum og lærum á meðan. Það eru alls konar atriði sem við pælum í.“ Dóra segir flesta einstaklinga fyndna og húmoríska inn við beinið, svo það sé yfirleitt ekki vandamálið. Það sem skipti mestu máli í sketsaskrifum sé að skrifa sem mest, helst helmingi meira en það sem notað er, til að geta valið úr. Láta svo vini sína og vandamenn lesa yfir og endurskrifa sem oftast. „Fyrsta uppkast þarf ekki að vera neitt fyndið.“ En verða þættirnir leiknir í framhaldinu? „Af því að við hittumst bara í þetta eina skipti getum við kannski ekki búið til heilu sketsana, heldur bara fengið hugmyndir að þeim,“ svarar Dóra og segir margar aðferðir til þess. Hugmyndirnar geti komið úr eigin lífi og umhverfi, úr steríótýpum, karakterum úr bíómyndum eða þáttum sem við höfum séð. „Það er hægt að fá innblástur alls staðar og við förum yfir nokkrar aðferðir til þess.“
Birtist í Fréttablaðinu Menning Mest lesið Er Rothschild-ættin að sölsa undir sig allan heiminn? Lífið Stjörnulífið: Hilmir Snær og Vala Kristín kósí í Laugum Lífið Minnast Davíðs: Hugrakkur, hnyttinn og stór í sniðum Lífið Ólga vegna brotthvarfs Sölku Sólar: „Þetta er vond ákvörðun“ Lífið Laufey og Collab í eina sæng Lífið Tækifærin þurrkuðust upp eftir stuðning við Palestínu Bíó og sjónvarp Ástrós Trausta og Adam kveðja Fossvoginn Lífið Guðni og gellurnar mættu í kokteilboð Lífið Ástin blómstraði á sýningu Tolla Menning Sverja af sér samsæriskenningar um klónaðan Carrey Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Sverja af sér samsæriskenningar um klónaðan Carrey Tækifærin þurrkuðust upp eftir stuðning við Palestínu Síðasti þáttur Nágranna í loftið á Sýn og aðdáandi syrgir Báðust afsökunar á niðrandi hljóðkækjum Borðtennisspaðar fóru tómhentir af BAFTA-hátíðinni Gyða semur tónlist fyrir kvikmynd Bad Bunny Hryllilega góð stemming á frumsýningu Röskunar Tæklar næst ítalskar kynlífskómedíur Nicolas Cage dularfullur köngulóarspæjari Múmían rís í fjórða sinn Ungir hjartaknúsarar mæta á hvíta tjaldið Meryl Streep verður Joni Mitchell Sjá meira