Fyrirliðinn framlengir hjá FH: Svona leikmaður er ekki á hverju götuhorni Tómas Þór Þórðarson skrifar 4. apríl 2018 09:40 Ásbjörn Friðriksson virðist aldrei ætla að yfirgefa Kaplakrika. Vísir/Ernir
Ásbjörn Friðriksson, fyrirliði FH í Olís-deild karla í handbolta, er búinn að framlengja samning sinn við Hafnafjarðarfélagið en þetta kemur fram á heimasíðu FH-inga. Ásbjörn skrifaði undir nýjan þriggja ára samning og er því samningsbundinn liðinu til ársins 2021. Hann hefur spilað í áratug með FH eða síðan hann gekk í raðir þess árið 2008. Með FH varð Ásbjörn Íslandsmeistari árið 2011 en hann stoppaði stutt við í Svíþjóð á þessum tíu árum áður en hann kom aftur í Hafnarfjörðinn. Hann er uppalinn hjá KA og spilaði með Akureyri í efstu deild áður en hann gekk í raðir FH. Ásbjörn spilaði alla 22 leiki FH-inga í Olís-deildinni í vetur þar sem liðið endaði í þriðja sæti og mætir Aftureldingu í átta liða úrslitum þegar að úrslitakeppnin hefst í næstu viku. Hann skoraði 4,9 mörk að meðaltali í leik og var með 65 prósent skotnýtingu. Þá skapaði hann fjögur færi að meðaltali í leik og gaf 2,7 stoðsendingar samkvæmt HB Statz. Hann var 14. besti leikmaður deildarinnar samkvæmt kraftröðun HB Statz. „Ási er frábær leikmaður og sterkur karakter sem fyrir löngu hefur skráð nafn sitt í sögu FH. Leikmaður eins og Ási er ekki á hverju götuhorni og því afar ánægjulegt að hann hafi ákveðið að spila áfram með okkur næstu árin,“ segir Ásgeir Jónsson formaður handknattleiksdeildar FH.
Olís-deild karla Mest lesið Bo Johansson er látinn Fótbolti Lætur Ingu Sæland heyra það: „Óboðlegt og frekar hrokafullt“ Sport Freyr fann sig knúinn til að setja nýja reglu Fótbolti Leynilegt ráðabrugg gæti ógnað endurkjöri Infantino Fótbolti „Íslensk knattspyrna er að kveðja mjög góðan mann“ Fótbolti Örlög Elísabetar í höndum fyrrverandi markvarðar Liverpool Fótbolti „Stelpurnar vissu ekki einu sinni af þessu“ Fótbolti Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Enski boltinn Lærir í Harvard meðan hann jafnar sig Enski boltinn Flautuþristar og frábær tilþrif: „Hún er eins og jarðýta“ Körfubolti Fleiri fréttir Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Uppgjörið: Fram - Valur 25-30 | Valur stöðvaði sigurgöngu Fram FH skoraði hátt upp í fimmtíu mörk gegn Fram Juku verulega á áhyggjur Norðankvenna Cornelia snýr aftur til Íslands Viktor Gísli varð fárveikur á HM Bikarmeistararnir flugu áfram og Afturelding vann í Kópavoginum Íslenskir leikmenn að skila sigrum í Meistaradeildinni Gengi Hauks og félaga ætlar ekki að batna Norska stjarnan lenti í árekstri við dómara Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Sjá meira