Sterling hefur enn ekki náð að gera neitt á móti sínu gamla félagi Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 5. apríl 2018 12:30 Raheem Sterling kemst ekkert áfram á móti Jordan Henderson og félögum. Vísir/Getty
Raheem Sterling er ekki vinsæll meðal stuðningsmanna Liverpool sem púa á hann við hvert tækifæri. Sterling kom inná sem varamaður í leik Manchester City og Liverpool í Meistaradeildinni í gær og fékk heldur betur að heyra það frá Anfield. Raheem Sterling yfirgaf félagið sem gaf honum tækifærið til að blómsta og vildi frekar fara til Manchester City til að geta unnið eitthvað. Það fór ekki vel í Liverpool fólk. Síðan þá hafa leikir Manchester City og Liverpool verið hrein martröð fyrir Raheem Sterling og hann er ekki að finna sig í þessu fjandsamlega umhverfi.Raheem Sterling has failed to score or assist in any of his seven appearances against Liverpool He has been on the winning side just once; a penalty shootout victory the League Cup. Haunted by his former side. pic.twitter.com/M7mitPsnMA — Squawka Football (@Squawka) April 4, 2018 Leikurinn í gær var hans sjöundi á móti Liverpool eftir að hann yfirgaf Anfield og Raheem Sterling hefur hvorki náð að skora mark eða leggja upp mark í þessum leikjum. Hann hefur aftur á móti fengið tvö gul spjöld. Það sem meira er, Manchester City hefur aðeins unnið einn þessara leikja og sá sigur kom í vítaspyrnukeppni. Það var reyndar fyrsti titilinn sem Raheem Sterling vann með Manchester City. Raheem Sterling var í leikbanni þegar Manchester City vann 5-0 sigur á Liverpool fyrr á þessu tímabili. Alls hefur Raheem Sterling nú spilað í 539 mínútur á móti Liverpool síðan að hann yfirgaf Anfield án þess að koma að marki. Markatalan í þessum sjö leikjum er -11 (6-17)Leikir Raheem Sterling á móti Liverpool:2015-16: 90 mínútur í 4-1 tapi á heimavelli 45 mínútur í 3-0 tapi á útivelli 120 mínútur í sigri í vítakeppni í úrslitaleik enska deildabikarsins2016-17: 90 mínútur í 1-0 tapi á útivelli 90 mínútur í 1-1 jafntefli á heimavelli2017-18 71 mínúta í 4-3 tapi á útivelli 33 mínútur í 3-0 tapi á útivelli í Meistaradeildinni
Enski boltinn Meistaradeild Evrópu Mest lesið Rifu sig upp eftir vonbrigðin í gær og unnu Frakka eftir rosa endasprett Handbolti Kókaínnotkun næringarfræðingsins um að kenna að boxarinn féll Sport Raunveruleiki sem þú getur ekki forðast Handbolti Fimmtán ára með besta hring dagsins á Íslandsmótinu Golf Synti yfir Eystrasaltið í 56 tíma án þess að stoppa Sport Kallar eftir afsögn Infantino og skaut á Blatter Fótbolti „Það voru pollar út um allt, þetta var vægast sagt slæmt“ Golf Valur í brekku: „Ýtum öllu sem er í gangi til hliðar“ Íslenski boltinn Markvörður Breiðabliks spilaði sem útileikmaður Íslenski boltinn Uppgjörið: Þór/KA-Fram 2-0 | Ungi miðvörðurinn hetja norðankvenna Íslenski boltinn Fleiri fréttir Liverpool fær miðvörð Barcelona á láni Coventry keypti leikmann af mótherjum Valsmanna Vildi ekki selja fyrirliðann og lofar að styrkja liðið í staðinn Arteta segir að leikmenn Arsenal hafi verið „brjálaðir“ eftir tapið Segir að nýi maðurinn í brúnni hjá Newcastle sé „rokkstjarna“ NBA-goðsögn fjárfestir í enska fótboltafélaginu Ipswich Town Barcelona blandar sér í baráttuna um Rodri Sauð á leikmönnum Arsenal eftir tapið fyrir Betis Fann fyndna lausn á fljótfæru húðflúri sínu Gamli West Ham-leikmaðurinn allt í öllu á sigri á Arsenal Jaissle ráðinn aðalþjálfari Newcastle Sagði það „augljósa“ ákvörðun að velja Man City frekar en Arsenal Konan sem á að rífa upp gengi Manchester United Chelsea tapaði fyrsta leik Mudryks í tvö ár Umdeildasti maður sumarsins orðaður við Tottenham Liverpool vill að minnsta kosti tvo leikmenn PSG United ekki lengi þjálfaralaust Mudryk fær séns til að sanna sig á ný „Þetta er búið, við erum góðir“ Dýrust í sögu ensku deildarinnar Arsenal nálgast kaup á Guimaraes Metfjöldi nýrra þjálfara Henderson genginn í raðir Chelsea Chelsea kaupir strákinn sem Bellingham sló og skoraði á móti Íslandi Sjáðu mörkin og kennslustundina sem Liverpool fékk frá Leeds í seinni Newcastle hafnar tilboði Arsenal í Guimaraes Mátti ekki klæða sig við hlið hinna leikmanna Man. Utd. Þjálfari Man Utd hættir mánuði fyrir mót Finnst Maresca vera fullkominn fyrir City Hló er hann var spurður út í Vinícius Júnior Sjá meira